Skoðun

Ósannindabrigsl

Ólína Þorvarðardóttir svarar Hirti Gíslasyni

Hjörtur Gíslason, stjórnarformaður Ögurvíkur hf., fékk birta athugasemd í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann sakar mig um „rakin ósannindi" um skuldastöðu og fjárfestingar fyrirtækisins Ögurvíkur. Af þessu tilefni skal tekið fram að ég hef hvergi fjallað sérstaklega um skuldir eða fjárfestingarstefnu Ögurvíkur. Nafn fyrirtækisins kom fyrir í grein sem ég skrifaði í Fréttablaðið 21. janúar sl. þar sem talin voru upp fjölmörg útgerðarfyrirtæki sem hafa starfað lengi í sjávarútvegi. Ummælin voru þessi:

„Eigendur þessara fyrirtækja hafa nýtt þær veiðiheimildir sem útdeilt var á fyrstu árum kvótakerfisins til þess að fjárfesta og skapa ný verðmæti. Gallinn er bara sá að þau verðmæti hafa mestmegnis runnið út úr greininni með áhættufjárfestingum og erlendum skuldum." Þarna er almennt verið að fjalla um skuldastöðu og fjárfestingarstefnu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, sem stjórnarformaður Ögurvíkur kýs að taka til sín og vill bera af sér. Það er honum heimilt. En að sverta nafngreint fólk með fullyrðingum um „rakin ósannindi" er ofmælt af þessu tilefni.

Höfundur er alþingismaður.






Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×