Hvar situr barnið þitt? Þóra Magnea Magnúsdóttir fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu skrifar 17. júlí 2010 06:00 Á hverju ári slasast yfir 20 börn, sex ára og yngri, sem eru farþegar í bílum. Með réttum öryggisbúnaði hefði verið hægt að koma í veg fyrir mörg þessara slysa og draga verulega úr áverkum í öðrum. Umferðarstofa og Slysavarnafélagið Landsbjörg könnuðu í maí sl. öryggi leikskólabarna í bílum. Könnunin var gerð við 75 leikskóla víða um land og var öryggisbúnaður 2.660 barna skoðaður. Könnun sem þessi hefur verið framkvæmd hér á landi frá árinu 1996 og á svo víðtæk könnun sér ekki hliðstæðu í öðrum löndum. Óhætt er að segja að á undaförnum árum hafi mikið áunnist í öryggismálum barna í bíl. Á fyrstu árum könnunarinnar var öryggisbúnaður barna í bíl óásættanlegur en ljóst er að hugarfarsbreyting hefur orðið í þessum efnum þótt enn vanti töluvert á að hægt sé að segja að ástandið sé viðunandi. Í ár kom í ljós að einungis 9,8% barnabílstóla voru bakvísandi en mun öruggara er fyrir barn yngra en þriggja ára að nota bakvísandi barnabílstól. Höfuð barns á þessum aldri er hlutfallslega stórt og þungt og hálsliðir þess ekki fullþroskaðir. Við árekstur eru minni líkur á alvarlegum áverkum á mænu og heila ef barn er í bakvísandi barnabílstól. Í könnuninni kom einnig í ljós að 10,8% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Þetta er nokkru betri útkoma en í fyrra þegar 12,8% barna voru í engum búnaði eða einungis í öryggisbelti. Öruggara er að barn noti bílstól eða bílpúða þar til það er orðið 10 til 12 ára (36 kg). Beinagrind barns er ekki orðin nægilega þroskuð til að þola það átak sem myndast af hefðbundnu öryggisbelti við árekstur. Ef beltið situr ekki rétt getur það jafnframt veitt alvarlega áverka á kviðarholi. Loks ber að nefna að barn sem er lægra en 150 sm á hæð má ekki vera farþegi í framsæti bifreiðar sem búin er uppblásanlegum öryggispúða fyrir framan sætið og því alltaf öruggara fyrir það að sitja í aftursæti. Í þessu sambandi skiptir engu þótt barnið sé í barnabílstól eða með annan viðeigandi öryggisbúnað. Höggið sem öryggispúðinn gefur þegar hann springur út getur leitt barn til dauða þó hann veiti fullorðnum öryggi. Í könnuninni sem gerð var nú í ár voru 20 börn í framsæti fyrir framan virkan öryggispúða, þar af voru 13 eingöngu með bílbelti en 3 laus. Þetta er heldur betri útkoma en í fyrra. Öryggisbúnaður barna í ökutækjum skal uppfylla kröfur samkvæmt reglum efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu. En þegar nýr barnabílstóll er keyptur er einnig nauðsynlegt að athuga hvort hann passi í bílinn og henti barninu. Gott er að láta barnið máta búnaðinn og hafa ber í huga að betra er að gera það þegar barnið er óþreytt. Endingartími barnabílstóla er 6-8 ár en eiginleikar þeirra efna sem notuð eru í stólana breytast með tímanum. Ekki má nota stól sem orðið hefur fyrir hnjaski eða skemmdum. Nánari upplýsingar um öryggi barna í bílum má finna á heimasíðu Umferðarstofu www.us.is og í bæklingnum Öryggi barna í bíl en í honum má finna upplýsingar um flokkaskiptingu öryggisbúnaðar barna í bíl. Einnig má senda fyrirspurn á fraedsla@us.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar