Vill sjá liðið fara í undanúrslit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2010 07:00 Stella Sigurðardóttir hefur skorað 12 mörk í tveimur leikjum á móti svissneska liðinu Brühl.
Framkonur mæta úkraínska liðinu Podatkova í Evrópukeppni bikarhafa og fara báðir leikirnir fram í Framhúsinu um helgina. Fyrri leikurinn, sem er heimaleikur Fram, fer fram klukkan 19.00 í kvöld en seinni leikurinn verður síðan klukkan 17.00 á morgun. „Við vitum voða lítið um þetta lið en ég held að við eigum að klára þetta nokkuð sannfærandi,“ segir Einar Jónsson, þjálfari Framliðsins. „Við ætlum okkur stóra hluti í þessari Evrópukeppni og ég myndi vilja sjá okkur reyna við undanúrslitin,“ segir Einar en liðið var hársbreidd frá því að fara í undanúrslit í áskorendakeppninni í fyrra. „Það verður vonandi ódýrari kostur fyrir okkur að spila báða leikina heima að því gefnu að fólk mæti á völlinn og við fáum einhverjar tekjur af leikjunum,“ segir Einar en Framarar ætla að bjóða upp á hamborgara og einhverja kvöldhressingu á vægu verði fyrir leikinn í kvöld. Einar segir fyrri leikinn skipta miklu máli og hann er óhræddur við að keyra upp hraðann þótt það sé innan við sólarhringur á milli leikjanna. „Við ætlum að keyra þetta á háu tempói og við teljum okkur vera í það góðu standi og með það góða breidd,“ segir Einar. Einar er mjög sáttur við sínar stelpur það sem af er tímabilinu. „Við höfum verið mjög sannfærandi hérna heima og spiluðum líka mjög vel í Evrópuleikjunum úti í Sviss. Mér sýnist vera smá þroskamerki á liðinu miðað við árið í fyrra,“ segir Einar.
Handbolti Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira