Menntaskólastærðfræði kennd með hjálp tölvuforrita 9. ágúst 2010 07:00 Ellert Ólafsson Höfundur kennslubókarinnar segir að tölvutæknin muni valda byltingu í stærðfræðikennslu á næstu árum.fréttablaðið/arnþór
Kennslubókin Stærðfræði í takt við tímann kom nýlega út en um er að ræða kennslubók í stærðfræði sem byggir á kennslu með notkun tölvuforrita. Bókin er ætluð framhaldsskólanemum en með henni skal nota stærðfræðiforritið Maple. Ellert Ólafsson verkfræðingur er höfundur bókarinnar. Hann segir tölvuvæðingu stærðfræðikennslu vera byltingu sem muni valda miklum breytingum á næstu árum. „Ég veit ekki hvort það á að kalla þetta kennslubók því þetta er byltingarkennd bók. Það er verið að umturna aðferðinni við stærðfræðikennslu og efnið í stærðfræðinni mun breytast alveg,“ segir Ellert. Hann segir að sá utanbókarlærdómur sem nú tíðkist geri engum gagn og að það sé einfaldlega úrelt að kenna stærðfræði án annarra verkfæra en blaðs og blýants. Í menntaskólanum Hraðbraut hefur undanfarin þrjú ár verið notast við Maple í stærðfræðikennslu. Viðar Ágústsson hefur kennt stærðfræði með hjálp forritsins undanfarin þrjú ár. Hann segist mæla með notkun þess. „Ég hef verið að nota Maple í efri stærðfræðiáföngunum í Hraðbraut. Ég kenni nemendum að nota forritið til að sjá hvort lausnirnar þeirra séu réttar og til að sjá hver leiðin að lausninni er,“ segir Viðar og bætir því við að þetta gefi nemendunum sjálfstraust til að glíma við dæmin og möguleikann á að leika sér svolítið með þau.- mþl
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira