Viðskipti innlent

Þurfa líklega að greiða tugi milljóna í skatt

Fyrrverandi stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Glitnis munu að öllum líkindum þurfa að greiða tugi milljóna króna í skatt vegna ólögmætra arðgreiðslna sem þeir fengu í sinn hlut. Glitnir veitti lán fyrir arðgreiðslunum sem námu 300 milljónum króna.

Samkvæmt hlutafélagalögum má ekki greiða út arð á fyrsta starfsári félags. Þá má ekki greiða út arð ef fyrirtækið hefur verið rekið með tapi eða ef arðgreiðslustofninn er neikvæður. Skattyfirvöld skoða nú arðgreiðslur fimm ár aftur í tímann en grunur leikur á að hundruð fyrirtækja hafi greitt út ólögmætan arð sem nemur nokkrum milljörðum króna.

Í skýrslunni eru tvö skýr dæmi um ólögmætar arðgreiðslur. Í maí 2008 veitti Glitnir lán til eignarhaldsfélaga fjórtán starfsmanna bankans og eins stjórnarformanns, alls að upphæð 8,3 milljarðar króna.

Eitt þessara félaga, HG Holding, í eigu stjórnarmannsins Hauks Guðjónssonar fékk 480 milljónir að láni frá bankanum. 330 milljónir fóru í að kaupa hlutabréf, 150 í arðgreiðslur til hluthafa HG Holding, eða Hauks sjálfs.

KÞG Holding í eigu Kristins Þórs Geirssonar, framkvæmdastjóra, fékk lán upp rúman 1,1 milljarð króna. Einum milljarði var varið til kaupa á hlutabréfum í Glitni, rest fór í arðgreiðslur til hluthafa félagsins, þ.e. Kristins.

Haft var eftir stjórnarformanninum, Þorsteini Má Baldvinssyni, í Viðskiptablaðinu á þessum tíma að: „Fyrirtæki Kristins hefur góða eiginfjárstöðu og það hefur lagt fram tryggingar fyrir láninu sem uppfylla að öllu kröfur bankans hvað slíkt varðar."

Tap félagsins hafði þó verið 50 milljónir króna árið áður og reyndar var hvorugt félag rekið með hagnaði árið sem arðgreiðslan féll til.

Af þessu er ljóst að Haukur og Kristinn munu að öllum líkindum þurfa að greiða tugi milljóna króna í skatt vegna arðgreiðslnanna. Alla jafna þarf að greiða fjármagnstekjuskatt af arðgreiðslum. Sá skattur var 10% en er í dag 18%. Ólögmætar arðgreiðslur eru hinsvegar skattlagðar sem launatekjur, eða í uþb 40% skattþrepi. Ofan á það hafa skattyfirvöld heimild til að leggja 25% álag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×