Skoðun

Vernd fyrir níðinga

Guðjón Sigurðsson skrifar um samfélagsmál.

Það er alveg fyrir neðan allar hellur þegar stofnun hins opinbera snýst í andhverfu sína.

Fyrirsögnin er dæmi um það sem ég tel raunveruleika dagsins í dag. Sé barnaverndaryfirvöldum sent erindi vegna illrar meðferðar á barni í sveitarfélagi A þá er einfalt mál fyrir illvirkjann að flytja í sveitarfélag B og þá má ekki færa upplýsingar á milli sveitarfélaga. Níðingurinn er verndaður.

Læknadóp er alvarlegur vandi og mætti mjög vel koma í veg fyrir það ef sjúkraskrá einstaklinga er miðlæg og læknir A veit hvað læknir B gaf viðkomandi af lyfjum hálftíma áður. Ef ég er fluttur á bráðamóttöku meðvitundarlaus væri þá ekki betra að viðkomandi læknar vissu allt um mig? Ofnæmi, lyf og bara sögu undirliggjandi sjúkdóma. Með tregðu persónuverndar þá er læknadópið verndað og sú starfsemi. Fíkill getur gengið á milli lækna og logið út mörgum skömmtum af sama dópinu sama daginn.

Ég vil hvetja landsmenn og ráðamenn til að vara sig á að vopnin snúist ekki í höndum okkar. Verndum börn og komum fíklum í meðferð, ekki öfugt.

Höfundur er formaður MND-félagsins.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×