Góður sigur Rhein-Neckar Löwen á Göppingen Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. maí 2010 20:07 Snorri Steinn Guðjónsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Pjetur
Rhein-Neckar Löwen kom sér upp í fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með góðum sigri á Göppingen í kvöld, 34-27. Löwen hafði þar með sætaskipti við Göppingen en þrátt fyrir sigurinn á fyrrnefnda liðið tæplega möguleika á því að ná Flensburg í þriðja sæti deildarinnar og öðlast þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Flensburg vann Dormagen á útivelli á sama tíma í kvöld, 30-26, og er í þriðja sæti deildarinnar með þriggja stiga forystu á Löwen. Alexander Petersson skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg í leiknum. Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu tvö mörk hvor fyrir Löwen í kvöld en Guðjón Valur Sigurðsson er frá vegna meiðsla. Þá tapaði Düsseldorf fyrir Balingen á útivelli, 35-25. Sturla Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir Düsseldorf sem er í neðsta sæti deildarinnar með tíu stig, rétt eins og Minden. Minden gerði í kvöld jafntefli við Hannover-Burgdorf á heimavelli, 27-27. Gylfi Gylfason skoraði fjögur mörk fyrir Minden og Ingimundur Ingimundarson þrjú. Hannes Jón Jónsson skoraði þrjú mörk fyrir Hannover-Burgdorf. Minden og Düsseldorf eru þremur stigum á eftir Dormagen sem er í þriðja neðsta sæti með þrettán stig. Ef Dormagen heldur því sæti þarf liðið að fara í umspil við lið úr þýsku B-deildinni um sæti í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira