Dómnefndin víki Baldur Arnarson skrifar 6. mars 2010 06:00 Baldur Arnarson skrifar um Íslensku blaðamannaverðlaunin Um síðustu helgi var tilkynnt um tilnefningar til blaðamannaverðlauna. Margir áttu von á því að Morgunblaðið yrði tilnefnt fyrir umfjöllun um Evrópumál. Svo varð ekki. Sú ákvörðun er hvorki fagleg né til vitnis um góð vinnubrögð. Færi ég nú fyrir því rök. Greinarflokkurinn er sá umfangsmesti sem nokkurt íslenskt dagblað hefur ráðist í fyrr og síðar. Þegar upp var staðið fyllti hann 46 síður, heilar 23 opnur. Viðtökurnar voru afar góðar og var efnið notað til kennslu í skólum. Um tíma stóð til að gefa það út sem bók, hugmynd sem horfið var frá vegna ytri aðstæðna. Leitað var andstæðra sjónarmiða við vinnslu greinanna og má nefna að Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, var höfð með í ráðum þegar leitað var að viðmælendum í Finnlandi. Þrír blaðamenn komu að verkinu, Pétur Blöndal, Rúnar Pálmason og undirritaður. Að auki sá Kristinn Garðarsson um uppsetningu vefhluta greinarflokksins, auk þess sem Elín Esther Magnúsdóttir vann mjög vandaða grafík fyrir hann. Pétur og Rúnar fóru til Brussel en undirritaður til Helsinki og síðar Kaupmannahafnar vegna umfjöllunar um evruna. Greinarflokkurinn braut blað í íslenskri blaðamennsku. Sérstakt vefsvæði var stofnað innan fréttavefs Morgunblaðsins þar sem boðið var upp á texta og viðtöl sem tekin voru upp erlendis. Enginn íslenskur fjölmiðill hefur boðið upp á jafn yfirgripsmikla umfjöllun um Evrópumál. Undirritaður leyfir sér að telja afurð þessa hóps, sem Ólafur Þ. Stephensen, þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins, setti saman um miðjan desember 2008, einhverja þá vönduðustu í sögu blaðsins og þar með í sögu íslenskra fjölmiðla. Vandséð er hvers vegna þessi mikli greinarflokkur var ekki álitinn eiga skilið tilnefningu í flokknum Besta umfjöllun ársins. Það er satt að segja óskiljanlegt. Ákvörðun dómnefndar Blaðamannafélags Íslands skilur fyrst og fremst eftir undrun í huga undirritaðs. Svar við fyrirspurn til Birgis Guðmundssonar, formanns dómnefndar, um ástæður valsins bættu lítið úr skák. Birgir gat ekki útskýrt valið með faglegum rökum eins og honum ætti að vera í lófa lagið. Tekið skal fram að um trúnaðarsamskipti var að ræða og verður því ekki frekar vísað til þeirra hér eða síðar. Framkoma dómnefndar er gróf móðgun sem ekki verður komist hjá því að mótmæla. Kemur undirritaður því á framfæri að hann segi sig úr Blaðamannafélagi Íslands. Dómnefndin starfar ekki faglega og ber því að víkja. Ákvörðunin er hneyksli og Blaðamannafélagi Íslands til háborinnar skammar. Höfundur er blaðamaður á Morgunblaðinu. Undirritaður tekur fram að hópfélagarnir voru ekki hafðir með í ráðum við ritun þessarar greinar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar