Lífið

Eurovision: Þýskaland vann - Ísland lenti í 19. sæti

Tinni Sveinsson skrifar
Lena tók þetta með stæl.
Lena tók þetta með stæl.
Söngvakeppni evrópskra söngvakeppni lauk rétt í þessu. Íslandi gekk ekki jafn vel og margir höfðu spáð. Lag Heru Bjarkar lenti í 19. sæti og var aldrei í topp tíu slagnum.

Keppnin í Osló gekk vel og Norðmenn stóðu sína pligt. Að vísu þurftu þeir að eiga við uppákomu sem aldrei hefur áður komið upp í Eurovision. Þegar Spánverjar fluttu sitt lag mætti óboðinn gestur upp á sviðið og dansaði af innlifun. Honum var hent niður en út af trufluninni fengu Spánverjar að flytja lag sitt aftur í lok keppninnar.

Þjóðverjar komust snemma á toppinn í atkvæðagreiðslunni og snemma varð ljóst að hin 19 ára gamla Lena Mayer myndi negla sigurinn með lagið Satellite. Alls kusu 39 þjóðir. Jóhanna Guðrún kom fram fyrir okkur Íslendinga í stigagjafarútsendingunni. Eflaust voru margir Íslendingar svekktir yfir atkvæðagreiðslunni, enda voru stigin ekki jafn mörg og vonast hafði verið eftir.

Hér er niðurstaða keppninnar birt á ensku frá síðunni Eurovision.tv. Hér sést í hvaða sæti lagið lenti, frá hvaða landi það er, flytjandinn, nafn lagsins og stigin:

1 Germany Lena Satellite 246

2 Turkey maNga We Could Be The Same 170

3 Romania Paula Seling & Ovi Playing With Fire 162

4 Denmark Chanée & N'evergreen In A Moment Like This 149

5 Azerbaijan Safura Drip Drop 145

6 Belgium Tom Dice Me And My Guitar 143

7 Armenia Eva Rivas Apricot Stone 141

8 Greece Giorgos Alkaios & Friends OPA 140

9 Georgia Sofia Nizharadze Shine 136

10 Ukraine Alyosha Sweet People 108

11 Russia Peter Nalitch & Friends Lost And Forgotten 90

12 France Jessy Matador Allez Olla Olé 82

13 Serbia Milan Stanković Ovo Je Balkan 72

14 Israel Harel Skaat Milim 71

15 Spain Daniel Diges Algo Pequeñito (Something Tiny) 68

16 Albania Juliana Pasha It's All About You 62

17 Bosnia & Herzegovina Vukašin Brajić Thunder And Lightning 51

18 Portugal Filipa Azevedo Há Dias Assim 43

19 Iceland Hera Björk Je Ne Sais Quoi 41

20 Norway Didrik Solli-Tangen My Heart Is Yours 35

21 Cyprus Jon Lilygreen & The Islanders Life Looks Better In Spring 27

22 Moldova Sunstroke Project & Olia Tira Run Away 27

23 Ireland Niamh Kavanagh It's For You 25

24 Belarus 3+2 Butterflies 18

25 United Kingdom Josh That Sounds Good To Me 10














Fleiri fréttir

Sjá meira


×