Enski boltinn

Torres bjargaði Liverpool - Sunderland lagði Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Torres í baráttunni í dag.
Torres í baráttunni í dag.

Fernando Torres kom Liverpool enn eina ferðina til bjargar í dag er hann skoraði eina mark leiksins gegn WBA.

Markið var einkar glæsilegt. Torres skaut boltanum fyrir utan teig í bláhornið en markið kom á 65. mínútu.

Liverpool var alls ekki að leika vel í dag og átti til að mynda færri skot á markið en WBA.

Man. City varð síðan að sætta sig við tap gegn Sunderland, 1-0. Darren Bent skoraði eina markið úr víti í uppbótartíma.

Carlos Tevez fékk besta færi leiksins er hann stóð einn gegn opnu marki. Skot hans var algjörlega misheppnað og sigldi hátt yfir markið. Hann sefur því væntanlega ekki vel í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×