Baulan búin: Kristín Hrönn og Svava María sigurvegarar kvöldsins Sigrún Tómasdóttir skrifar 8. febrúar 2010 21:56 Svava María Ómarsdóttir og Kristín Hrönn Jónsdóttir, sigurvegarar.
Hin margfræga söngvakeppni Skólafélags Menntaskólans við Sund, Baulan, var haldin hátíðleg föstudaginn 29. janúar. Skipuð var sjö manna nefnd í haust, Mjaltakonur, og sáu þær um skipulagningu á atburðinum. Í byrjun virtust fáir ætla að taka þátt en þegar á hólminn var komið komust færri að en vildu. Keppnin var að þessu sinni haldin í Vetrargarðinum í Smáralind. Þegar komið var á staðinn á miðvikudeginum fyrir keppni sáust aðeins mislitir sviðspallar á stangli um gólfið og ein einmanaleg stúka en með samvinnu og dugnaði tækjamanna og aðstandenda tókst smám saman að koma þessu í gott stand. Keppendur voru fjórtán talsins og er deginum ljósara að það er mikið af hæfileikafólki í MS. Salurinn fylltist á met tíma og var stemningin frábær. Kór skólans byrjaði kvöldið með atriði og svo tóku keppendur við, koll af kolli. Það voru svo þær Kristín Hrönn Jónsdóttir og Svava María Ómarsdóttir sem stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins með frumsamda lagið Your lips not on mine eftir Kristínu. Þær stöllur munu svo keppa fyrir hönd MS á Akureyri í apríl og munu MS-ingar flykkjast norður til að styðja við bakið á þeim. Í öðru sæti lenti svo Unnsteinn Árnason með lagið Til eru fræ og í því þriðja Agnar Birgir Gunnarsson með lagið Iris. Keppnin tókst í alla staði vel og áhorfendur skemmtu sér konunglega.Þessi frétt er skrifuð af fulltrúa MS fyrir Skólalífið á Vísi.
Menntaskólar Mest lesið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið Uppskrift: Bragðmikill grillaður kjúklingaborgari að hætti Rakelar Maríu Lífið samstarf Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Fleiri fréttir Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Sjá meira