Handbolti

Andersson gæti misst af HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Alfreð Gíslason er í vandræðum með stöðu hægri skyttu hjá Kiel. Svíinn Kim Andersson hefur verið meiddur í hálft ár og á enn langt í land og svo var Þjóðverjinn Christian Zeitz að meiðast líka.

Þar sem það er enn langt í að Andersson komi aftur á völlinn gerir læknateymi Kiel allt til þess að fá Zeitz sem fyrst í gang. Læknar liðsins eru nokkuð bjartsýnir á að hann nái stórleiknum gegn Hamburg þann 16. nóvember en hann átti upprunalega að vera frá í að lágmarki þrjár vikur.

Andersson viðurkennir að svo geti farið að hann verði ekki með á HM í Svíþjóð í janúar sem væri sérstaklega svekkjandi fyrir hann.

"Ég hef aldrei verið meiddur lengur en í þrjár vikur þannig að þetta er erfitt fyrir mig," sagði Andersson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×