Skoðun

Þú kýst ekki eftir á

Einar Skúlason skrifar

Á morgun verður kosið til borgarstjórnar Reykjavíkur til næstu fjögurra ára. Ný hugsun og endurnýjun í íslenskum stjórnmálum er nauðsynleg og því býð ég mig fram á endurnýjuðum lista Framsóknar og heiti því að vinna af heiðarleika og ábyrgð fyrir ykkur borgarbúa allt kjörtímabilið.

Atvinnumálin skipta okkur Framsóknarmenn miklu máli. Við viljum að borgin sé ákjósanlegur valkostur fyrir stór og smá fyrirtæki sem vilja hasla sér völl og stækka. Þannig minnkar atvinnuleysi, tekjur aukast og útgjöld minnka án þess að skattar og gjaldskrár hækki umfram verðlag.

Með skynsamlegri fjármálastjórn og markvissri forgagnsröðun, þar sem viðkvæmustu hópar samfélagsins eiga að njóta forgangs, á borgin að geta sinnt velferðar-, skóla-, dagvistunar- og umhverfishlutverki sínu með sóma. Það er ekki sjálfsagt að þetta mikilvæga verkefni takist vel. Það er því mikilvægt að fulltrúar öfgalausrar miðjustefnu og samvinnu hafi sterka rödd í borgarstjórn og komi að úrlausn vandamála og uppbyggingu í þágu borgarbúa. Þú getur lagt þitt af mörkum með því að mæta á kjörstað og setja X við B í Reykjavík á morgun.

Einar Skúlason, oddviti framsóknarmanna í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Afruglari

Þórður Björn Sigurðsson skrifar

Sjá meira


×