Samkeppnishömlum í rækjuútgerð aflétt Finnbogi Vikar skrifar 20. júlí 2010 06:00 Ákvörðun Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að heimila frjálsar veiðar á úthafsrækju er góð ákvörðun sem ætti að koma þjóðarbúinu vel og skapa fjölda starfa með litlum tilkostnaði fyrir íslenska ríkið, ólíkt mörgum öðrum verkefnum sem eru í farvatninu. Gjaldeyristekjur þjóðarbúsins ættu samkvæmt öllu eðlilegu að aukast við þessa ákvörðun þar sem núna koma inn tekjur af áður vanýttri auðlind ef útgerðir sjá sér fært um að nýta sér tækifærið sem felst í frjálsri rækjuveiði, sem verður væntanlega stýrt með sóknarstýringu að einhverju marki. Stjórnvöld eru með þessari ákvörðun að lýsa því yfir að ekki verði liðið að kvóti sem útgefin er í einstökum tegundum sé nánast eingöngu fénýttur til að auka framsalsheimildir í öðrum tegundum í hagnaðarskyni fyrir kvótahafann en þjóðarbúið verður á sama tíma af gjaldeyristekjum. En slík ráðstöfun hefur viðgengist með úthafsrækjukvótann svo árum skiptir. Þegar úthafsrækjukvótinn er ekki lengur til staðar minnka möguleikar útgerðar að leigja frá sér kvóta í öðrum tegundum og þar með að fénýta heildarkvótann með öðrum hætti en að veiða kvótann. Leiguliðar með kvótalausar og kvótalitlar útgerðir munu hagnast aðallega á þessari ákvörðun vegna þess að núna er einokun rækjuvinnsla innan raða LÍÚ sem ráða yfir úthafsrækjukvóta afnuminn og frjáls samkeppni ríkir því á milli rækjuvinnsla um hráefni til vinnslu þar sem rækjuvinnslur standa nú jafnfætis í samkeppni um hráefnið. Það kemur úthafsrækjuútgerðum til góða því aflinn er seldur hæstbjóðanda en ekki landað beint til kvótahafans á verði sem ákveðið er nánast einhliða af kvótahafanum þannig að útgerðaraðilinn (þ.e. leiguliðinn) fær ekkert upp úr krafsinu nema ánægjuna af því að vinna og rækjuvinnslan sem eru handhafi kvótans og valdsins hefur fengið allan hagnaðinn fram að þessu. Ákvörðun Jóns Bjarnasonar hefur þau áhrif að sjómenn verða ekki lengur tilneyddir ólöglega til að taka þátt í að greiða fyrir kvótaleigu í úthafsrækjuveiðum þar sem þörfin fyrir kvótaleigu er ekki lengur til staðar hafi það átt sér stað. Frelsi í úthafsrækjuveiðum er fyrst og fremst stór pólitísk yfirlýsing um að kvótinn sé ekki einkaeign LÍÚ fyrirtækja. Þessi ákvörðun er fordæmis gefandi fyrir fleiri tegundir sem hafa verið vannýttar á undanförnum árum og notaðar í tegundatilfærslur, auk þess mætti þessi ákvörðun ná til svokallaðra meðaflategunda. Jón Bjarnason, ráðherra, er að senda núverandi handhöfum kvótans í LÍÚ skýr skilaboð. Kvótinn er ekki varanleg einkaeign þeirra og ef útgerðarmenn innan LÍÚ nýta ekki kvótann þá eru forréttindi þeirra til atvinnu af úthafsrækjuveiðum afnuminn með einu pennastriki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar