Snorri Steinn og Arnór í úrslitaleikinn eftir framlengdan leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. desember 2010 17:22 Arnór Atlason er kominn í bikarúrslitaleikinn annað árið í röð. Mynd/Heimasíða AG
Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason komust í kvöld í úrslitaleik danska bikarsins eftir 27-26 sigur lið þeirra AG frá Kaupmannahöfn á Skjern í framlengdum undanúrslitaleik í NRGi-höllinni í Árósum. AG hafði aðeins tapað einu stigi á tímabilinu og það var einmitt á móti Skjern þegar liðin gerðu 26-26 jafntefli í þriðju umferð. Skjern er í 3. sæti dönsku deildarinnar átta stigum á eftir AG sem er enn taplaust. Leikurinn var jafn og spennandi í upphafi en eftir að Skjern hafði frumvæðið í byrjun náði AG að komast tveimur mökum yfir. AG var síðan með frumkvæðið þar til að Skjern náði góðum endaspretti fyrir hálfleik. Skjern vann lokamínútur fyrri hálfleiksins 5-1 og var 14-11 yfir í hálfeik. AG skoraði tvö fyrstu mörk seinni hálfleiks og minnkaði muninn í eitt mark, 14-13, og nú héldu flestir að þeir myndu taka frumkvæðið í leiknum. Það fór þó ekki svo, Skjern svaraði með því að skora fjögur mörk í röð og komst fimm mörkum yfir, 18-13. Skjern hélt síðan fjögurra marka forskoti þar til í lokin er AG tryggði sér framlengingu með því að skora fjögur síðustu mörk leiksins og breyta stöðunni úr 24-20 fyrir Skjern í 24-24. AG byrjaði framlenginguna vel, skoraði tvö fyrstu mörkin og var komið með frumkvæðið í leiknum sem liðið hélt síðan út leikinn. Arnór Atlason skoraði tvö mörk fyrir AG í dag. Úrslitaleikurinn fer fram á mörgum og þar mætir AG heimamönnum í Århus Håndbold sem unnu 30-24 sigur á Team Tvis Holstebro fyrr í dag. Ingimundur Ingimundarson er á málum hjá Århus-liðinu en var ekki með liðinu í dag.
Handbolti Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira