Skoðun

Velferð barna í borginni

Fanný Gunnarsdóttir skrifar
Ég vil vekja athygli á nýlegum samþykktum borgarstjórnar sem lúta að velferð og öryggi barna borgarinnar. Borgarstjórn hefur samþykkt að á árinu 2010 verði forgangsraðað með velferð barna að leiðarljósi og á sérstakur aðgerðahópur að leggja fram tillögur um útfærslu til borgarinnar.

Þegar gengið var frá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár var samþykkt að leggja 10 milljónir króna í að útfæra hugmyndir og koma á fót frístundavögnum í hverfum borgarinnar. Það hafa margir lýst yfir áhuga og nauðsyn þess að bjóða börnum borgarinnar upp á öruggan ferðamáta þegar kemur að þátttöku í frístundastarfi. Lengi hefur verið bent á kosti þess að gera vinnudag barna sem samfelldastan þ.e. að frístundir og skóladagurinn myndi eina samfellda heild. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar en þær hafa ekki náð að festa sig almennt í sessi í borginni.

Með því að bjóða upp á frístundavagna er hægt að gera dag barna og foreldra einfaldari, draga úr skutli og þar með óhöppum í umferð, loftmengun og stressi. Það hafa alls ekki allir foreldrar tækifæri til að skreppa úr vinnu til að sækja börn og keyra á milli staða. Reyndar reyna foreldrar að skipuleggja sig og samræma ferðir vina og félaga. Þrátt fyrir að strætisvagnar gangi um borgina eru til hverfi þar sem almennissamgöngum er ábótavant og þó þær séu til staðar henta þær ekki alltaf.

Eins og fram kemur í kynningu frá Reykjavíkurborg er ætlunin að börnum standi til boða góðar og öruggar samgöngur innan hverfa borgarinnar þannig að þau geti komist í frístundastarf frá heimili eða skóla. Með skipulögðum og öruggum ferðamáta má jafnframt vænta þess að fleiri börn og unglingar nái að nýta sér þau frístundatilboð sem boðið er upp á. Vagnarnir ættu að auðvelda samstarf skólayfirvalda og skipuleggjenda frístundastarfs í borginni. Ég sé fyrir mér að ef vel tekst til ættu börn að geta sótt skóla og fjölbreytt frístundastarf í sínum hverfum og komist örugg á milli staða. Það þarf strax nú á nýju ári að hefjast handa við að undirbúa og kynna þessa nýju þjónustu en að því verki verða að koma ólík svið borgarinnar.

Þar sem ég er það lánsöm að starfa með börnum, unglingum og foreldrum þeirra vænti ég mikils af þessum samþykktum og hlakka til að fylgjast með framgangi þeirra hér í Reykjavík.

Höfundur er starfandi náms- og starfsráðgjafi í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×