Áhrif ESB-aðildar í Póllandi Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar 4. júní 2010 10:40 Pólland, sótti um aðild að ESB árið 1994 og fékk aðild 2004, ásamt fleiri löndum Austur-Evrópu. Landið er fimmta stærsta ríki ESB, með um 39 milljónir íbúa.Undanfarið hefur Grikkland fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Í umræðunni hefur því mun minna borið á þeim ríkjum ESB, þar sem vel hefur gengið. Pólland er einmitt eitt þessara ríkja. En hvernig hafa áhrif aðildar komið út fyrir Pólland? Í skýrslu sem gefin var út í fyrra eru áhrif aðildar á landið tekin saman.Hagvöxtur (vöxtur þjóðarframleiðslu frá ári til árs), jókst verulega í Póllandi eftir aðild, sökum aukinnar eftirspurnar og fjárfestinga. Árið 2007 var 6,6% hagvöxtur í Póllandi, en að meðaltali var rúmlega fimm prósenta hagvöxtur á árunum 2003-2008. Á sama tímabili jókst framleiðni einnig umtalsvert, eða um 10% á sérstökum kvarða sem mælir slíkt.Framlög ESB úr ýmsum sjóðum sambandsins eru mikilvægur þáttur í þróun efnahagsmála í Póllandi og á tímabilinu 2004-2008 fengu Pólverjar 14 milljarða evra frá ýmsum sjóðum/áætlunum ESB, umfram það sem þeir greiddu til sambandsins. Á tímabilinu 2007-2013 munu Pólverjar fá um 70 milljarða evra, sem m.a. á að nota til uppbyggingar á sviði samgöngu og umhverfismála, sem og almennrar atvinnuuppbyggingar.Erlendar fjárfestingar hafa aukist verulega eftir aðild. Árið 2007 námu þær tæpum 17 milljörðum evra. Verslun og viðskipti hafa einnig aukist, eða um tæp 20% að magni til á ári frá aðild.Pólland er mikil landbúnaðarþjóð, en mikil andstaða kom frá bændum gegn aðild, rétt eins og hér á landi. Pólskir bændur voru meðal tekjulægstu stétta í öllum fyrrverandi kommúnistaríkjum Evrópu fyrir aðild.Frá aðild hefur hins vegar mikið breyst, til hins betra. Framleiðni í pólskum landbúnaði var árið 2007 um 47% hærri en árið 2000 og útflutningur á pólskum landbúnaðarvörum jókst um 250% á árunum 2003-2007. Innflutningur jókst á sama tímabili um 125%. Í frétt frá Warzaw Business Journal frá 10. maí sl. kemur fram að tekjur pólskra bænda hafi frá árinu 2000 aukist um 107%!Í grein frá AFP frá 2009 kemur fram að afstaða pólskra bænda hafi orðið mun jákvæðari. Margir þverskallist þó við og fjárfesti ekki, en enn fleiri hafi notað stuðning frá ESB til að nútímavæða pólskan landbúnað. Eldri bændur hafa selt land (verð hækkaði) og því hafa pólsk býli stækkað. Pólskum bændum hefur fækkað, en þeir sem eftir eru, reka stærri bú og hafa meiri tekjur. Því eru pólskir bændur færri en fyrir aðild, en mun tekjuhærri. Á næstu árum mun stuðningur við pólskan landbúnað aukast enn frekar.Tekið til í sjávarútvegiHvað varðar fiskveiðar, þá þurftu Pólverjar að taka til á þeim bænum, skip hafa verið úrelt með áætlunum sem ESB hefur styrkt og veiðigetan þar með minnkuð. Búist er við að floti Pólverja minnki enn frekar fram til 2013.Frá aðild hefur hins vegar verðmæti fiskútflutnings aukist um 40%, en frá 2004-2007 jókst verðmæti fiskútflutnings úr 442 milljónum dollara í 923 USD árið 2007. Innflutningur á fiski hefur einnig aukist, aðallega til fullvinnslu. Þetta hefur leitt til stórfelldrar þróunar á framleiðslutækni pólsks fiskiðnaðar, sem hafði tvöfalt meiri tekjur árið 2008 en árið 2003.Gríðarlegt atvinnuleysi var í Póllandi í byrjun aldarinnar, eða allt að 20%. Það tók að lækka eftir inngöngu landsins í ESB, en hefur nú aftur aukist vegna fjármálakreppunnar. Nú um stundir er atvinnuleysi í Póllandi um 10%. Búist er við að það lækki þegar líður á árið. Spáð er um 2,7% hagvexti í Póllandi í ár og 3,3% á næsta ári. Því gæti farið svo að atvinnuleysi minnki enn frekar í Póllandi á næsta ári.Fram kemur í skýrslunni að með aðild að ESB hafi í raun lokið ferli sem gert hefur fyrrverandi kommúnistaríkið Pólland að frjálsu markaðshagkerfi, sem nú sé reiðubúið að takast á við vaxandi samkeppni á alþjóðamörkuðum.Af þessu má draga þá ályktun að með aðild hafi Póllandi farnast mun betur en að standa fyrir utan ESB; "Með aðild hefur munurinn á Póllandi og öðrum leiðandi löndum álfunnar minnkað verulega," segir í skýrslunni. Í áðurnefndri grein AFP telur pólskur embættismaður að Pólland hafi þróunarlega séð tekið "risastökk" með aðstoð frá ESB og það sé líka mjög að þakka yfirvöldum á sveitarstjórnarstiginu, sem hafi nýtt sér aðild á mjög skilvirkan hátt.Samstaða um að nýta aðildinaHér hafa aðeins verið nefnd nokkur atriði úr skýrslunni sem ber heitið "Five years of Poland in the European Union". Mun fleiri þættir eru teknir fyrir í henni sem hafa haft mikla þýðingu fyrir Pólland, t.d. rannsóknar, og þróunarstarf, mennta og neytendamál. Þá eru hér ónefndir þættir eins og aukin pólitísk áhrif Pólverja í gegnum aðild og bætt og gjörbreytt staða þeirra á alþjóðavettvangi og innan Evrópu.Greinileg samstaða er meðal Pólverja um að nýta sér aðildina til fulls, í þágu framfara fyrir pólsku þjóðina. Enda er mikill meirihluti Pólverja þeirrar skoðunar að landið eigi heima í ESB. Um þá gildir ef til vill vel orðatiltækið, "sá veldur, sem á heldur".Höfundur er M.A. í stjórnmálafræði og situr í stjórn Evrópusamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar