Handbolti

Hamburg vann fyrsta titilinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron í baráttunni við Michael Kraus í dag.
Aron í baráttunni við Michael Kraus í dag. Nordic Photos / Bongarts

HSV Hamburg vann fyrsta titil tímabilsins í þýska handboltanum með sigri á Kiel í Supercup-leiknum svokallaða, þar sem deildar- og bikarmeistarar síðasta tímabils mætast.

Hamburg vann nauman sigur, 27-26, eftir að hafa verið með tveggja marka forystu í hálfleik, 13-11.

Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel en Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×