Galopið VR 24. mars 2010 06:00 Björn S. Lárusson viðskiptafræðingur skrifar grein er birtist í Fréttablaðinu í gær, 23. mars. Heldur hann uppteknum hætti og leitast við að gera þá tortryggilega sem starfa fyrir VR, í stað þess að höfða til félagsmanna á forsendum eigin verðleika og stefnu. Björn segir helsta áherslumál hans fyrir yfirstandandi stjórnarkjör vera að opna félagið, án þess þó að skýra það nánar. Undanfarið hefur staðið yfir opin stefnumótun innan félagsins sem öllum félagsmönnum hefur gefist kostur á að taka þátt í. Þessi vinna er í fullum gangi og þessa dagana er verið að boða enn fleiri félagsmenn til starfsins á stóran stefnumótunarfund í lok apríl. Öll stjórn VR er sammála um að breyta þarf fyrirkomulagi kosninga innan félagsins. Það verður hins vegar eingöngu gert á aðalfundi félagsins. Ný stjórn sem kjörin hefur verið hefur ekki starfað svo lengi að aðalfundur hafi verið haldinn. Næsti aðalfundur verður haldinn 28. apríl 2010 og verða breytingatillögur á kosningafyrirkomulaginu lagðar þar fram. VR er líklega eina stóra stéttarfélagið sem gerir upplýsingar um fjármál félagsins aðgengilegar á vef sínum. Allir stjórnarmenn geta fengið nánari upplýsingar um fjármál þess, gert athugasemdir og komið með tillögur til úrbóta. Í stað þess hafa nokkrir stjórnarmenn frekar kosið að senda fjölmiðlum upplýsingar sem ætlaðar eru fyrir félagsmenn og gera þær tortryggilegar á opinberum vettvangi. VR er ekki lífeyrissjóður en félagið á kjarasamningsbundinn rétt til að tilnefna stjórnarmenn í Lífeyrissjóð verzlunarmanna (Lv). Ný stjórn VR gerði meiri breytingar á stjórn Lv en gerðar voru á nokkrum öðrum lífeyrissjóði í kjölfar kreppunnar með tilnefningu þriggja nýrra stjórnarmanna. Reynslumikill og varfærinn maður var fenginn til að leiða stjórnina, Ragnar Önundarson, sem var einn fárra sem vöruðu við áhættusækni íslensku fjármálafyrirtækjanna fyrir hrun. Stjórn VR ber fullt traust til Ragnars og það er virkilega dapurlegt að Björn S. Lárusson skuli kjósa að draga heiðarleika Ragnars í efa. Kosningar eru árlegur viðburður í VR en einungis einu sinni áður hafa félagsmenn óskað eftir allsherjarkosningu. Félagsmenn hafa í ár sameiginlega kosið sér lista og lagt fram undir merki A-lista. A-listinn er skipaður blöndu af nýju fólki og fólki með reynslu. En það er einnig verið að kjósa 82 manna trúnaðarráð sem er stjórninni til ráðgjafar. Á það minnist Björn hvergi. Þetta er mikilvægur hópur sem nauðsynlegt er að sé virkur og upplýstur. Þetta eru fulltrúar okkar á þingum ASÍ og LÍV, ásamt því sem ráðið sinnir ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Reynsla af yfirstandandi starfsári hefur því miður verið sú að aðeins lítill hluti þeirra sem skipuðu L-listann virtist hafa áhuga á starfi trúnaðarráðsins, öðrum kom jafnvel á óvart að sjá nöfn sín í ráðinu. Þetta er óheppilegt. A-listinn er tilraun til að sameina alla þá sem vilja vinna félaginu og félagsmönnum gagn. Hann er mikilvægt skref í átt til sátta milli þeirra sem tekið hafa þátt í VR í gegnum tíðina og þeirra sem komið hafa með nýtt blóð og nýja strauma inn í félagið. Það er von mín að A-listinn nái góðri kosningu svo félagið geti gengið sameinað til verka á kjarasamningsári, tekist á við erfiðar aðstæður tæplega þrjátíu þúsund félagsmanna sinna og haldið áfram uppbyggingu VR sem leiðandi stéttarfélags á Íslandi – stéttarfélags sem er sterkt, opið og lýðræðislegt. Höfundur er formaður VR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Flokkur fólksins þorir og getur Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Hin leiðin í umferðarmálum Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir skrifar Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Kerfisbundinn ránsfengur: Hvernig OHF-væðingin breytti lýðveldinu í sjálfsafgreiðslustöð Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar