Skoðun

Doði í Reykjavík

Oddný Sturludóttir skrifar

Atvinnuleysi er mikið í Reykjavíkurborg, tæplega 7000 manns eru án vinnu. Reykjavíkurborg ber ríka ábyrgð á tímum mikils atvinnuleysis og þá ábyrgð eru stjórnmálahreyfingar mistilbúnar að axla. Atvinnumálin draga fram skýran mun á ábyrgri jafnaðarstefnu og aðgerðarlausri frjálshyggju. Við segjum: Aðgerðir strax. Frjálshyggjan segir: Bíðum og látum markaðinn um þetta.

Sú bið gæti orðið okkur dýrkeypt. Hver mánuður í atvinnuleysi er samfélagslegt tjón. Atvinna er stærsta velferðarmálið og við verðum að koma sem flestum vinnandi höndum til verka. Strax eftir hrun lagði Samfylkingin fram tillögu um nýja atvinnustefnu fyrir Reykjavík. Hún náði yfir svið ferðamennsku, heilsu, lista og menningar, kvikmyndagerðar, tónlistar, orkumála, skólamála, verslunar, þekkingar og þjónustu. Samfylkingin hefur ítrekað lagt til átak í bráðnauðsynlegum viðhaldsverkefnum til að örva atvinnustig, nýtingu á tómu húsnæði í þágu nýsköpunar, eflingu skapandi greina með stuðningi við vísindagarða og að borgin einfaldi regluverk sitt svo auðveldara sé að stofna og reka fyrirtæki.

Samfylkingin hefur lagt til að borgin endurreisi Aflvaka, þróunar- og nýsköpunarfélag í atvinnumálum til beinnar markaðssetningar á tækifærum borgarinnar. Flestar þessara tillagna eru óafgreiddar og í frestun. Lítið hefur gerst, því miður. Og atvinnuleysið eykst. Á vettvangi Atvinnumálahóps hefur verið ráðist í margar jákvæðar aðgerðir til að vinna gegn neikvæðum afleiðingum atvinnuleysis, með úthlutun fjármagns til að ráða atvinnuleitendur inn á svið borgarinnar. Líklegt er að hægt sé að ráða um 200 manns inn til borgarinnar í skamman tíma - svo betur má ef duga skal. Hvenær ætlar borgin að móta sér alvöru, öfluga atvinnustefnu? Sami frjálshyggjudoðinn og kom okkur í hrunið má ekki einkenna viðbrögð Reykjavíkurborgar við kreppunni.

Mörgum finnst sem friður sé kominn á í Ráðhúsi Reykjavíkur eftir mesta niðurlægingartímabil í sögu borgarstjórnar þar sem valdabrölt manna náði nýjum lægðum og borgarstjórastóllinn var settur á uppboð. En friður er ekki það sama og doði. Og Reykvíkingar þurfa ekki á doðanum að halda, Reykvíkingar þurfa á aðgerðum að halda.






Skoðun

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×