Stór dagur fyrir Suðurland, segir bæjarstjóri Ölfuss 15. febrúar 2010 18:56 Frá undirritun í dag.
Hönnun kísilverksmiðju í Þorlákshöfn og nýrrar virkjunar á Hellisheiði eru komin á fulla ferð en samningsrammi var undirritaður síðdegis. Bæjarstjóri Ölfuss segir þetta stóran dag fyrir Suðurland og Reykjavíkursvæðið enda muni verkefnið hafa gífurleg áhrif. Stjórn kanadíska fyrirtækisins Timminco samþykkti samningsrammann fyrir sitt leyti í síðustu viku og stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í dag og var hann undirritaður nú síðdegis. Timminco hefur í samstarfi við íslenska félagið Strokk Energy stofnað félagið Thorsil um verkefnið. Fyrir Orkuveituna þýðir undirskriftin að hönnun nýrrar virkjunar við Hverahlíð verður strax sett á fulla ferð með það í huga að framkvæmdir geti hafist eftir rúmt ár. Þá eru sex verkfræðingar byrjaðir að undirbúa kísilverið á Íslandi og samningur kominn við verkfræðistofu í Kanada. Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsil, segir að umtalsverð vinna verði við verkfræðilegan undirbúning þetta og næsta ár. Smíði verksmiðjunnar á svo að hefjast um mitt næsta ár og framleiðsla kísilmálms síðla árs 2013, en hann verður síðan hreinsaður til nota í sólarflögur. Sextíu milljarða fjármögnun verkefnisins er óleyst en Hákon telur að ekki verði erfitt að afla fjár til kísilversins. En hvað með fjármögnun virkjunar? Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir að þegar sé búið að fjármagna helminginn í gegnum Evrópska fjárfestingarbankann en menn verði svo að hinkra eftir því að Icesave fái farsælan endi til að menn komi að fullu að borðinu með Íslendingum. Vonast menn til að ljúka endanlegum samningum í apríl. Bæjarstjóri Ölfuss, Ólafur Áki Ragnarsson, sér fram á 400 ársverk á byggingartíma og 160 framtíðarstörf í Þorlákshöfn. "Þetta er virkilega stór dagur fyrir Suðurland í heild sinni því að þetta mun hafa gífurleg áhrif á allt Suðurland og höfuðborgarsvæðið líka," segir Ólafur Áki.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Fleiri fréttir Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Sjá meira