Árið 2009 var stærsta ferðamannaárið frá upphafi 15. janúar 2010 11:58
Heildarfjöldi ferðamanna á Íslandi að meðtöldum farþegum skemmtiferðaskipa var árið 2009 0,7% meiri en árið 2008, eða 566 þúsund miðað við 562 þúsund og því má gera ráð fyrir að um sé að ræða stærsta ferðamannaárið á Íslandi frá upphafi.Þetta kemur fram í yfirliti frá Ferðmannastofu um árið í fyrra. Þar segir að íslensk ferðaþjónusta má vel við una eftir árið 2009. Þrátt fyrir hnattræna kreppu og versnandi afkomu ferðaþjónustunnar í Evrópu, óx umfang íslenskrar ferðaþjónustu á síðasta ári. Þennan vöxt má ekki síst rekja til þess að erlendum ferðamönnum fjölgaði frá mörgum helstu mörkuðum íslenskrar ferðaþjónustu samkvæmt talningum Ferðamálastofu á brottförum um Leifsstöð.Langflestir erlendra gesta, eða 94%, fóru um Keflavíkurflugvöll, 2,8% um Reykjavíkurflugvöll, 2,8% með Norrænu um Seyðisfjörð og 0,3% um Akureyrar- og Egilsstaðaflugvöll. Skiptinguna má sjá í töflunni hér fyrir neðan. Farþegar til Íslands með skemmtiferðaskipum voru tæplega 72 þúsund á árinu 2009, 16% fleiri en árinu áður.Ferðamálastofa hefur um árabil staðið fyrir brottfarartalningum á Keflavíkurflugvelli eftir helstu þjóðernum. Samkvæmt þeim fóru 464.500 erlendir gestir frá landinu um flugvöllinn á árinu 2009, sem er fækkun um 8.000 gesti eða 1,7% frá árinu áður.Mikil fjölgun var frá Mið- og Suður Evrópu á árinu 2009 í samanburði við fyrra ár, Spánverjum fjölgaði um 32%, Ítölum um 25%, Svisslendingum um 21%, Þjóðverjum um 15% og Frökkum um 10%. Norður Ameríkönum fjölgaði um tæp 8% en fjöldi Norðurlandabúa stóð í stað. Bretum fækkaði hins vegar um 12%, Pólverjum um 41% og gestum frá öðrum svæðum um 15%.Allar brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð eru inni í þessum talningum, þ.m.t. brottfarir erlends vinnuafls. Þar sem ekki er eftirlit með vinnuafli frá evrópska efnahagssvæðinu er erfitt að meta hlutfall þess í tölum en gera má ráð fyrir að erlent vinnuafl hafi vegið töluvert þyngra árið 2008.254.500 Íslendingar fóru utan á árinu 2009 en á árinu 2008 fóru 406.600 Íslendingar utan. Fækkunin nemur 37% milli ára."Heimskreppan hefur haft neikvæð áhrif á ferðaþjónustu um allan heim, ekki síst í Evrópu en þar hafa flest lönd verið að sjá stöðnun eða samdrátt. Flest Evrópuríki sáu hins vegar mikinn vöxt í ferðum heimamanna innanlands sem vann upp tapið í ferðaþjónustunni," segir Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri.„Efnahagsástandið í heiminum hefur hins vegar ekki komið illa niður á íslenskri ferðaþjónustu og er landið í hópi örfárra Evrópulanda þar sem ekki hefur orðið veruleg fækkun í komum erlendra gesta og fjölda erlendra gistinátta. N-Ameríkönum fjölgaði t.a.m. um tæp átta prósent á meðan bandarískum ferðamönnum til Evrópu fækkaði um 4% og Ísland er í hópi þeirra landa sem hafa séð hvað mesta aukningu frá Mið- og S- Evrópu. Auk þess bendir allt til að þetta hafi verið metár í ferðalögum Íslendinga innanlands."Óstöðugt efnahagsástand á heimsvísu gerir það hins vegar að verkum að erfitt er að spá fyrir um framtíðina, segir Ólöf Ýrr. "Þannig gera flestar nágrannaþjóðir okkar Íslendinga ráð fyrir hægfara vexti í ferðaþjónustu á árinu 2010 og einungis lítilsháttar fjölgun erlendra gesta. Hérlendis má þó gera ráð fyrir talsverðri aukningu erlendra gesta vegna aukins sætaframboðs til landsins frá okkar helstu mörkuðum auk þess sem ætla má að ferðaþjónusta njóti áfram góðs af hagstæðu gengi íslensku krónunnar. Það má því gera ráð fyrir góðu ferðaári 2010."
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Sjá meira