Öryggi fólks í Reykjavík 26. febrúar 2010 06:00 Á dögunum undirrituðu borgarstjóri og lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu samning til tveggja ára um samstarf lögreglunnar og Reykjavíkurborgar á sviði öryggis- og forvarnarmála. Markmið eru sett í samstarfssamningnum um að fækka innbrotum, eignaspjöllum og umferðaslysum í borginni um 5-10% með ýmsum aðgerðum. Það er ánægjulegt að borgaryfirvöld taki afgerandi skref til samstarfs með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til að tryggja meiri þjónustu í hverfum borgarinnar. Á liðnum árum hefur lögreglan ýmist slegið í eða úr með hverfaþjónustu. Þá er kveðið á um það í samningnum að lögreglan eigi mikið samstarf með þjónustumiðstöðvum borgarinnar og fái þar aðstöðu . Það er dýrmætt að þessir aðilar deili reynslu sinni og þekkingu á hverfunum með forvarnir í huga. Sérstaklega verður beint sjónum að því að auka umferðaröryggi við skóla borgarinnar og fækka þannig umferðarslysum . Þá er rætt um samstarf í því skyni að setja upp nágrannavörslu íbúa, í skipulagningu á forvarnarfundum og á foreldrarölti. Í flestum hverfanna er mikil og góð reynsla af samstarfi þessara aðila, en mikilvægt er að festa samstarfið og verkefnin betur í sessi og horfa til lengri tíma í senn. Fyrir þjónustumiðstöðvarnar er þetta hvatning um áframhaldandi lykilhlutverk þeirra í hverfum borgarinnar og jákvæð skilaboð til starfseminnar sem hefur verið að þróast á þeirra vegum. Það er mikilvægt að færa daglega þjónustu lögreglunnar nær íbúum borgarinnar, rétt eins og þjónustumiðstöðvarnar eru að gera og tryggja sýnileika lögreglunnar út í hverfunum. Þannig er verið að bæta þjónustu til íbúa, fækka slysum og afbrotum og stuðla að auknu öryggi íbúa. Meira af slíku! Höfundur er oddviti framsóknarmanna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Á dögunum undirrituðu borgarstjóri og lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu samning til tveggja ára um samstarf lögreglunnar og Reykjavíkurborgar á sviði öryggis- og forvarnarmála. Markmið eru sett í samstarfssamningnum um að fækka innbrotum, eignaspjöllum og umferðaslysum í borginni um 5-10% með ýmsum aðgerðum. Það er ánægjulegt að borgaryfirvöld taki afgerandi skref til samstarfs með lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu til að tryggja meiri þjónustu í hverfum borgarinnar. Á liðnum árum hefur lögreglan ýmist slegið í eða úr með hverfaþjónustu. Þá er kveðið á um það í samningnum að lögreglan eigi mikið samstarf með þjónustumiðstöðvum borgarinnar og fái þar aðstöðu . Það er dýrmætt að þessir aðilar deili reynslu sinni og þekkingu á hverfunum með forvarnir í huga. Sérstaklega verður beint sjónum að því að auka umferðaröryggi við skóla borgarinnar og fækka þannig umferðarslysum . Þá er rætt um samstarf í því skyni að setja upp nágrannavörslu íbúa, í skipulagningu á forvarnarfundum og á foreldrarölti. Í flestum hverfanna er mikil og góð reynsla af samstarfi þessara aðila, en mikilvægt er að festa samstarfið og verkefnin betur í sessi og horfa til lengri tíma í senn. Fyrir þjónustumiðstöðvarnar er þetta hvatning um áframhaldandi lykilhlutverk þeirra í hverfum borgarinnar og jákvæð skilaboð til starfseminnar sem hefur verið að þróast á þeirra vegum. Það er mikilvægt að færa daglega þjónustu lögreglunnar nær íbúum borgarinnar, rétt eins og þjónustumiðstöðvarnar eru að gera og tryggja sýnileika lögreglunnar út í hverfunum. Þannig er verið að bæta þjónustu til íbúa, fækka slysum og afbrotum og stuðla að auknu öryggi íbúa. Meira af slíku! Höfundur er oddviti framsóknarmanna í borgarstjórnarkosningunum í vor.
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar