HK-ingar úr leik í Evrópukeppninni eftir fimmtán marka tap Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2010 12:30 Mynd/Stefán
HK er úr leik í Evrópukeppni bikarhafa eftir tvö töp á móti rússneska liðinu Kaustik. HK lék báða leikina í Rússlandi um helgina, sá fyrri tapaðist með fimm mörkum og HK-liðið tapaði síðan með 15 marka mun í seinni leiknum, 24-39, sem var að klárast. Hákon Hermannsson Bridde og Ólafur Bjarki Ragnarsson skoruðu báðir fimm mörk fyrir HK og Bjarki Már Elísson var með fjögur mörk. HK-liðið var greinilega búið á því í seinni leiknum í dag því liðið átti aldrei möguleika eftir fyrstu fimmtán mínúturnar. Erfitt ferðalag til Rússlands sem og leikurinn í gær var búið að taka sinn toll af liðinu. HK-liðið var með frumkvæðið framan af leik og meðal annars 7-6 yfir þegar þrettán mínútur voru liðnar. Kaustik skoraði þá fjögur mörk í röð og var síðan komið sex mörkum yfir í hálfleik, 17-11. Kaustik skoraði fyrstu tvö mörk seinni hálfleiks og var komið tíu mörkum yfir eftir rúmlega átta mínútna leik. Kaustik hélt áfram sínu striki og vann að lokum fimmtán marka sigur. HK-ingar geta því farið að einbeita sér að N1 deildinni en framundan er toppslagur á móti Akureyri fyrir norðan á fimmtudaginn.HK-Kaustik 24-39 (11-17)Mörk HK: Hákon Hermannsson Bridde 5, Ólafur Bjarki Ragnarsson 5, Bjarki Már Elísson 4, Atli Ævar Ingólfsson 3, Daníel Berg Grétarsson 3, Björn Þórsson Björnsson 2, Atli Karl Bachman 2.
Handbolti Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira