Gunnar Steinn: Við erum með betra lið en Ystad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2010 10:00 Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson og félagar í Drott eru komnir í oddaleik í undanúrslitum sænska handboltans og geta tryggt sér sæti í úrslitaleiknum á móti Sävehof vinni þeir Ystad í dag. Gunnar Steinn og félagar verða í beinni útsendingu á SVT 2 sem næst á Digital Ísland. Gunnar Steinn hefur slegið í gegn í sænska boltanum í vetur og hann átti stórleik þegar Drott jafnaði einvígið í síðasta leik. Gunnar Steinn skoraði 10 mörk í leiknum og nýtti öll sex vítin sín. Gunnar er markahæsti leikmaðurinn í fyrstu fjórum leikjum einvígisins en hann hefur skorað 25 mörk úr 44 skotum sem gerir 57 prósent skotnýtingu. „Við stefnum núna á úrslitaleikinn því við erum með betra lið en Ystad," sagði Gunnar Steinn í viðtali við Hallandsposten. „Ég hef ekki skorað 10 mörk í leik síðan að ég spilaði á Íslandi en ég var mjög vonsvikinn eftir tapið í þriðja leiknum og var búinn að bíða í eftirvæntingu eftir að geta náð fram hefndum," sagði Gunnar. „Við spiluðum ekki vel í leikjum tvö og þrjú en við spiluðum mjög vel í fjórða leiknum. Við ætlum bara að halda áfram að spila okkar leik og ef við náum því þá vinnum við þennan leik í Ystad. Pressan er á þeim og við ætlum bara að láta vaða. Það eru bara tveir leikir eftir í gullið," sagði Gunnar Steinn en í Svíþjóð er bara einn úrslitaleikur um titilinn. Leikurinn er í beinni útsendingu í sænska sjónvarpinu og hefst klukkan 14.00 að sænskum tíma eða klukkan 12.00 að íslenskum tíma. Þeir sem eru með Digital Ísland ættu að gera náð leiknum á SVT 2 sem er á stöð 73 á Digital Ísland.
Handbolti Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira