Fjórflokknum gefin fingurinn Friðrik Indriðason skrifar 17. maí 2010 19:34 Íslenskur almenningur virðist endanlega búinn að fá upp í kok af stjórnmálamönnum landsins. Hann hefur gefið fjórflokknum fingurinn svo um munar. Ný skoðanakönnum sýnir að grínframboðið Besti flokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í borginni og það svo um munar. Slíkt hlýtur að vera meira kjaftshögg fyrir frambjóðendur annarra flokka þar á bæ en þeir fá við ráðið. Væri ég pólitíkus í dag og í framboði fyrir einhvern fjórflokkanna í borginni myndi ég tilkynna um skyndileg bráðaveikindi sem gerðu mér ókleyft að halda framboði mínu til streitu. Ég á hinsvegar ekki von á neinni slíkri tilkynningu. Þeir sem skipa efstu sætin á framboðslistum fjórflokkanna í borginni munu örugglega hugsa sem svo: „Þetta reddast á kjördeginum. Almenningur er ekki svona heimskur." Ég tel nefnilega að almenningur muni einmitt verða „svona heimskur". Þetta er jú eina tækifæri hans á nokkurra ára fresti til þess að láta í ljós skoðun sína á stjórnmálastétt landsins eins og hún leggur sig og meta hana að verðleikum. Ég hef löngum sagt að í lýðræðisþjóðfélagi fái þjóðin þá þingmenn sem hún á skilið. Þeir eru jú kosnir með meirihluta atkvæða. Það er svo annað mál að innst inni tel ég að menn á borð við Jón Gnarr, Einar Benediktsson, Óttar Proppé og fleiri á þessum lista eigi fyllilega jafnmikið erindi í borgarstjórn og flestir þeir „jólasveinar" sem þar hafa vermt sætin undanfarin fjögur ár. Ég tel raunar að við borgarbúar eigum þá félaga skilið. Það er eiginlega leitun að öðru eins ömurlegu liði og ráðið hefur borginni s.l. kjörtímabil. Um það mætti hafa sömu orð og Styrmir Gunnarsson fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins hafði í skýrslu sinni til rannsóknarnefndar Alþingis..." Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta." Þessi orð Styrmis hafa hvergi komið jafnskýrlega í ljós eins og í stjórn borgarinnar undanfarin fjögur ár. Ég vinn í blaðamennskubransanum og á sjálfur oft erfitt með að telja alla borgarstjórana og meirihlutana upp í réttri tímaröð. Hvað þá allt klúðrið. Borgarbúar er nú tilbúnir að gefa grínframboði sjéns því þeir hafa vart í raun annan valkost. Allavega ekki eftir að hafa horft fram á lítið annað undanfarin fjögur ár en ...engin prinsipp, engar hugsjónir og bara tækifærismennsku og valdabaráttu. Verði öðrum flokkum en gríninu að góðu á kjördag. Ef ég nenni að mæta á annað borð fá Jón Gnarr og félagar mitt atkvæði. Res ipsa logiutur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar