Ég sé fyrir mér mennskan heim 25. febrúar 2010 06:00 Einn fallegan morgun fyrir réttum fjórtán árum setti ég á blað persónulega yfirlýsingu sem ég nefndi „Ég sé fyrir mér mennskan heim". Það sem þarna var ritað stóð einhvern veginn ljóslifandi fyrir mér og tiltrú mín hefur ekki minnkað þrátt fyrir tímabundna erfiðleika sem við göngum nú í gegnum. Ekki síst er tiltrú mín sterk á unga fólkið sem er kraftmikið og skapandi og reiðubúið til þess að leita nýrra leiða. Mig langar að deila þessari sýn með ykkur sem lesa. „Ég sé fyrir mér mennskan heim, ég vil vera húmanisti og hef ákveðið að helga líf mitt því tilgangsríka verkefni húmanista úti um allan heim að gera hann mennskan. Ég sé fyrir mér mennskt Ísland sem orðið geti fyrirmynd annarra þjóðfélaga, um betra þjóðfélag fyrir alla. Ég sé fyrir mér að í öllum hverfum, alls staðar í öllum götum, hittist fólk heima hjá hvert öðru. Ég sé fyrir mér fólkið hittast til þess að bera saman líðan sína, sorgir sínar og vonbrigði, vonir sínar og þrá, aðeins eftir hamingjusömu lífi án angistar, misskilnings og þjáningar fyrir sig og fyrir þá sem þeim þykir vænt um. Ég sé fyrir mér fólk í öllum hverfum, öllum skólum, öllum vinnustöðum, í öllum félögum byrja að bera saman þrá sína eftir þjóðfélagi þar sem fólk er ekki að þeytast út og suður í leit að ómerkilegum hlutum, uppbót fyrir tilgangslausa og litlausa tilveru. Ég sé fyrir mér fólk alls staðar úti um allt land byrja að hittast reglulega til að bera saman sameiginlega þrá eftir því að öll þessi þjáning, vegna óréttlætisins, græðginnar og einstaklingshyggjunnar, verði yfirstigin. Ég sé fyrir mér að fólk uppgötvi, þegar það fer að hittast, fer að ráða ráðum sínum saman, að innsta þrá hvers og eins er hin sama. Ég sé fyrir mér að fólk í sameiningu uppgötvi sín í milli aðeins að við viljum hamingju fyrir okkur sjálf og fyrir þá sem okkur þykir vænt um. Ég sé fyrir mér að þegar, alls staðar og úti um allt, þetta fer að gerast, muni fólk uppgötva undraverðan kraft, óvænta sameiginlega visku, hamingju og gleði. Öll þekking býr í hinum mörgu, allt sem búið er til og heimurinn gengur fyrir er gert með þekkingu og framlagi hinna mörgu. Það er aðeins þannig að öll völdin, öll uppspretta græðginnar, allir áhrifamiðlarnir eru í höndum nokkurra fárra, gráðugra og tillitslausra valda- og peningamanna. Það er engin þekking þar, það er ekkert framlag þar og heimurinn gengur sallafínt án þeirra. Ég sé fyrir mér að fólkið taki auðveldlega, og án ofbeldis og hörmunga, völdin í sínar hendur. Ég sé fyrir mér að fólkið opni nýja leið, nýja mannkynssögu svo gjörólíka allri sögu mannsins hingað til, ég sé nýja mannveru fæðast. Ég sé fyrir mér Ísland, sem fyrsta landið í heiminum sem nái þessu marki. Allar stofnanir og félög eru hér eins og annars staðar. Flestir kynstofnar og þjóðir eiga fulltrúa sína í íslensku þjóðfélagi og eru hluti af því eins og annars staðar. Allar stefnur og straumar, allir fordómar, allt trúleysi, allt vonleysi, allt óöryggi, öll tortryggni, öll græðgi, allt tillitsleysi og allt óréttlæti er hér eins og annars staðar. Allt þetta sem þarf að leysa alls staðar í heiminum er einnig hér. En þetta er svo auðvelt hjá lítilli þjóð, jafn auðvelt og það er fyrir arkitektinn að leysa úr öllum málum með því að byrja á litlu líkani. Þanniggetum við leyst úr málum til að byggja okkar félagslega líkan sem síðan er hægt að byggja í margfaldaðri stærð úti um allan heim. Þannig leggjum við fram okkar skerf til alheimslegrar mennskrar þjóðar." Höfundur er félagi í Húmanistahreyfingunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar