Búa þarf í haginnfyrir fyrirtækin 7. júlí 2010 06:00 Varasamt er að láta niðurskurð hins opinbera bitna á háskólakerfinu. Það getur hamlað vexti sprotageirans í framtíðinni, að sögn framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs.Markaðurinn/Vilhelm „
Við verðum að búa í haginn fyrir fjárfesta og bjóða upp á góðar aðstæður, í það minnsta sambærilegar og í nágrannalöndum. Þanni glæðum við atvinnustarfsemi sem er undirstaða efnahagslífsins,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Finnur segir ekki hafa tekist vel við efnahagsstjórn síðustu árin. Efnahagslífið hafi um langt árabil einkennst af sveiflum, sem hafi gert stjórnendum fyrirtækja erfitt um vik. Óvissa spillir fyrirÍ kjölfar efnahagshrunsins hafi ekki betra tekið við: „Stjórnvaldsaðgerðir hafa valdið því að traust á þá sem halda í stjórnartauma hefur rýrnað. Það fælir á brott fyrirtæki sem hafa kost á að fara annað og kemur í veg fyrir að önnur leiti hófanna hér,“ segir Finnur og bætir við að ýmsar breytingar á skattkerfinu upp á síðkastið og aðrar sem fyrirhugaðar eru séu ekki til þess fallnar að halda í fyrirtæki eða laða önnur hingað til lands. „Það verður að koma í veg fyrir að forsvarsmenn fyrirtækja sem geta farið annað hugleiði flutning þeirra. Í því sambandi ætti að horfa heildstætt á umhverfi fyrirtækjanna. Í dag eru margar brotalamir í kerfinu – ýmis atriði sem þegar á heildina litið gera rekstrarumhverfið fráhrindandi. Þær bætast við óróleikann í efnahagslífinu og skaða samkeppnishæfni hagkerfisins.“ Finnur leggur ríka áherslu á nauðsyn þess að tryggja hagfellt umhverfi til reksturs fyrirtækja í alþjóðlegri starfsemi. Öðru fremur þurfi að draga úr pólitískum óstöðugleika og auka traust á stjórnvöld og vilja þeirra til að styðja við atvinnulífið. Einnig þurfi að gæta að afleiðingum örra og lítt grundaðra breytinga á skattkerfinu. Slíkt umhverfi sé fráhrindandi. „Stjórnendur fyrirtækja huga að því hvort hag þeirra fyrirtækja sé betur borgið hér en annars staðar. Ef það er ekki raunin þá ýtir það undir líkur á að starfsemi fyrirtækja færist út fyrir landsteinana, sem þýðir að verðmætasköpun og störf fylgja og skatttekjur tapast. Í því viðkvæma ástandi sem við búum við núna munar um hvert fyrirtæki,“ segir Finnur og hefur sérstakar áhyggjur af fyrirtækjum innan hugverkageirans, sem eru hvað hreyfanlegust. Óljós framtíðFinnur segir mikilvægt að stjórnvöld geri upp við sig hvers kyns atvinnustarfsemi verði hér í framtíðinni. Hann er fylgjandi hugmyndum sem fjallað hefur verið um upp á síðkastið og fela í sér hvatningu fyrir fólk á atvinnuleysisskrá að afla sér tæknimenntunar. Það rími við yfirlýstan stuðning stjórnvalda við uppbyggingu sprotastarfsemi. „Hugverkaiðnaðurinn byggir á hugmyndum og þekkingu, sem ekki er bundin við landamæri. Í þessum geira í dag eru á milli átta til níu þúsund störf og þörf fyrir eitt til tvö þúsund manns til viðbótar á hverju ári,“ segir Finnur. „Við þurfum á fleirum að halda til að standa undir vexti þessa geira,“ bætir Finnur við og og víkur að mikilvægi menntakerfisins sem anni ekki þörfinni í dag. „Það þarf vissulega að skera niður í opinberum útgjöldum, en um leið þarf að huga að undirstöðum efnahagslegrar endurreisnar. Þetta er umhugsunarefni því háskólamenntun, sérstaklega á sviði tæknigreina, telst til grunnstoða hugverkaiðnaðarins þar sem sóknarfæri okkar liggja ljóslega,“ segir Finnur.
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Sjá meira