Forréttindahópurinn sem felldi Ísland 14. október 2010 14:44 Robert og Sigurbjörg segja í greininni Skuggaelítan: Innherjarnir sem felldu efnahag Íslands að höfuðábyrgðin liggi hjá ríkisstjórn Geirs Haarde og samherja hans til langs tíma Davíð Oddssyni.
Charles Ferguson leikstjóri heimildamyndarinnar Inside Job sem fjallar um fjármálakreppuna segir í samtali við New York Times að hann hefði vel getað gert mynd um Ísland eitt og sér. Ferguson er gáttaður á því hve miklum skaða mjög fámennur forréttindahópur gat valdið Íslandi. „Þú hefðir getað komið þeim öllum fyrir á veitingahúsi," segir Ferguson. Vefsíðan Huffington Post fjallar um málið og birtir útdrátt úr ítarlegri greiningu prófessorsins Robert Wade og stjórnsýslufræðingsins Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur sem birt er í nýjasta tölublaði tímaritsins New Left Review. Fyrirsögnin á umfjölluninni er, Skuggaelítan: Innherjarnir sem felldu efnahag Íslands. Þau Robert og Sigurbjörg segja að þótt villt hegðun íslensku bankamannanna sé skólabókardæmi um bókhaldssvik liggi höfuðábyrgðin hjá ríkisstjórn Geirs Haarde og samherja hans til langs tíma Davíð Oddssyni sem stjórnaði Seðlabanka Íslands eftir að hafa verið forsætisráðherra árin 1991 til 2004. Þeir tveir hafi verið hluti af nýrri kynslóð valdamanna sem einakvæddu ríkisfyrirtæki til að ná sínum eigin markmiðum fram. Robert og Sigurbjörg fjalla aðeins um fortíð þeirra Davíðs og Geirs í svokölluðum Eimreiðarhópi en sá hópur hafi m.a. verið stofnaður til þess að meðlimir hans kæmust til valda framhjá Kolkrabbanum svokallaða sem samanstóð af 14 efnuðustu fjölskyldum Íslands. Eftir að þeir komust til valda hafi þeir stýrt sjálfum sér og samherjum sínum í lykilstöður í þjóðfélaginu. Þar voru upplýsingar, sem erindi áttu til almennings, lokaðar inni í tengslaneti þeirra. Augljósasta dæmið hafi verið þegar Davíð Oddsson sem seðlababankastjóri fastsetti gengi krónunnar í miðju hruninu haustið 2008 við gengið sem gilti fyrir hrunið. Hagfræðilega hafi verið um brjálaða ákvörðun að ræða en hugsanlega gátu einhverjir samherjar nýtt sér ákvörðun Davíðs til að koma krónum sínum í skjól þá klukkutíma sem ákvörðunin stóð. Sérfræðingar seðlabankans hafi ekki verið hafðir með í ráðum þegar þessi ákvörðun var tekin. Þá er fjallað um að bæði Davíð og Geir hafi verið meistarar í að stjórna fjölmiðlaumfjöllun með því að halda frá, eða að, fjölmiðlum upplýsingum sem þeir einir og samherjar þeirra bjuggu yfir. Þær stofnanir sem sýndu eitthvað sjálfstæði í greiningu sinni á efnahagsmálum, eins og Þjóðhagsstofnun, hafi einfaldlega verið lagðar niður. Aðrar eins og Hagstofan hafi verið kúgaðar til hlýðni og til að sitja á óheppilegum upplýsingum, að sögn Robert og Sigurbjargar. Í staðinn fyrir sjálfstæðar stofnanir hafi allir átt að styðjast við greiningardeildir bankanna og Viðskiptaráð sem virkaði í raun eins og klappstýra fyrir bankana. Talið er að um 90% af þeim tillögum sem Viðskiptaráð setti fram fyrir hrunið hafi endað í lagafrumvörpum á Alþingi. Í staðinn hafi þakklátir bankar sýnt stuðning sinn í verki með örlátum fjárstuðingi við stjórnmálamennina. Þau Robert og Sigurbjörg segja að þessi nýja tegund af valdamönnum eigi auðvelt með að snúa mistökum upp í tækifæri. Nefna þau þar til sögunnar að í stað þess að draga Davíð Oddsson til ábyrgðar fyrir sinn þátt í hruninu hafi hann verið verðlaunaður með ritstjórastöðu á Morgunblaðinu, leiðandi fjölmiðli á Íslandi. Þar geti hann áfram stjórnað umræðunni og upplýsingaflóðinu sér og sínum í hag. Þetta segja þau Robert og Sigurbjörg að sé eins og að hafa gert Richard Nixon að ritstjóra Washington Post meðan á Watergate hneykslinu stóð.
Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Sjá meira