Hestadagar í Reykjavík 19. mars 2010 06:00 Óskar Bergsson skrifar hestamennsku . Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að Reykjavíkurborg verði, einu sinni á ári, sérstakur vettvangur fyrir íslenska hestinn, undir nafninu Hestadagar í Reykjavík. Þessi ákvörðun eru viðbrögð Reykjavíkurborgar við skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis og er framlag borgarinnar til þessa markaðsátaks. Hestadagar í Reykjavík eru ekki tengdir ákvörðun um Landsmót hestamannafélaga árið 2012, heldur er hér um að ræða árvissan viðburð sem fyrst verður haldinn í marsmánuði 2011. Með þessum viðburði geta íbúar og gestir Reykjavíkur komist í nána snertingu við íslenska hestinn sem er ný nálgun með það að markmiði að tengja saman menningu og náttúru í borgarumhverfinu. Með Hestadögum í Reykjavík í marsmánuði er stigið skref í kynningu á íslenska hestinum í vetrarbúningi, þegar hross eru á húsi og daginn farið að lengja. Marsmánuður getur bæði verið harður vetrarmánuður og ljúfur vormánuður og við það verður miðað í öllum undirbúningi. Ástæðan fyrir því að marsmánuður er valinn er m.a annars vegna þess að á þeim tíma eru flestir með hross sín á húsi og í þjálfun. Skólarnir í borginni eru starfandi á þessum tíma og því góður tími til að kynna hestinn fyrir nemendum. Síðast en ekki síst má geta þess að marsmánuður er utan hefðbundins ferðamannatíma og því hagsmunir fyrir ferðaþjónustuna að draga til sín ferðamenn í tengslum við íslenska hestinn. Hestadagar í Reykjavík munu glæða borgina nýju lífi innan borgarmarkanna þar sem hesturinn verður í aðalhlutverki. Á Hestadögum sjáum við fyrir okkur að hestar komi fram á stöðum sem fólk er ekki vant að sjá hross, s.s. eins og í miðborginni, við verslunarmiðstöðvar og við skóla borgarinnar, til viðbótar við sýningar og keppni á félagssvæði Fáks á Víðivöllum. Eitt af einkennum Hestadaganna á að vera léttleiki og frjálslegt sýningarform sem á að ná til alls almennings. Keppnisgreinarnar verði hugsaðar þannig að léttleiki og frelsi íslenska gæðingsins njóti sín sem best og að áhorfandinn upplifi hughrifin af íslenskum gæðingi, teknum til kostanna í höfuðborg landsins.Reykjavíkurborg vonast til með að eiga gott samstarf við hagsmunaaðila í hestamennskunni sem sjá tækifæri í því að markaðsetja starfsemi sína í höfuðborginni með tilkomu Hestadaga í Reykjavík. Höfundur er formaður borgarráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði Skoðun Skoðun Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Skoðun Rödd ungs fólks á Seltjarnarnesi þarf að heyrast Auður Halla Rögnvaldsdóttir skrifar Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir skrifar Skoðun Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rúllum út rauða dreglinum Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Ég, glæpamaður Daníel Hjörvar Guðmundsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Með svipuna á bakinu Rannveig Eyja Árnadóttir skrifar Sjá meira
Óskar Bergsson skrifar hestamennsku . Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að Reykjavíkurborg verði, einu sinni á ári, sérstakur vettvangur fyrir íslenska hestinn, undir nafninu Hestadagar í Reykjavík. Þessi ákvörðun eru viðbrögð Reykjavíkurborgar við skýrslu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis og er framlag borgarinnar til þessa markaðsátaks. Hestadagar í Reykjavík eru ekki tengdir ákvörðun um Landsmót hestamannafélaga árið 2012, heldur er hér um að ræða árvissan viðburð sem fyrst verður haldinn í marsmánuði 2011. Með þessum viðburði geta íbúar og gestir Reykjavíkur komist í nána snertingu við íslenska hestinn sem er ný nálgun með það að markmiði að tengja saman menningu og náttúru í borgarumhverfinu. Með Hestadögum í Reykjavík í marsmánuði er stigið skref í kynningu á íslenska hestinum í vetrarbúningi, þegar hross eru á húsi og daginn farið að lengja. Marsmánuður getur bæði verið harður vetrarmánuður og ljúfur vormánuður og við það verður miðað í öllum undirbúningi. Ástæðan fyrir því að marsmánuður er valinn er m.a annars vegna þess að á þeim tíma eru flestir með hross sín á húsi og í þjálfun. Skólarnir í borginni eru starfandi á þessum tíma og því góður tími til að kynna hestinn fyrir nemendum. Síðast en ekki síst má geta þess að marsmánuður er utan hefðbundins ferðamannatíma og því hagsmunir fyrir ferðaþjónustuna að draga til sín ferðamenn í tengslum við íslenska hestinn. Hestadagar í Reykjavík munu glæða borgina nýju lífi innan borgarmarkanna þar sem hesturinn verður í aðalhlutverki. Á Hestadögum sjáum við fyrir okkur að hestar komi fram á stöðum sem fólk er ekki vant að sjá hross, s.s. eins og í miðborginni, við verslunarmiðstöðvar og við skóla borgarinnar, til viðbótar við sýningar og keppni á félagssvæði Fáks á Víðivöllum. Eitt af einkennum Hestadaganna á að vera léttleiki og frjálslegt sýningarform sem á að ná til alls almennings. Keppnisgreinarnar verði hugsaðar þannig að léttleiki og frelsi íslenska gæðingsins njóti sín sem best og að áhorfandinn upplifi hughrifin af íslenskum gæðingi, teknum til kostanna í höfuðborg landsins.Reykjavíkurborg vonast til með að eiga gott samstarf við hagsmunaaðila í hestamennskunni sem sjá tækifæri í því að markaðsetja starfsemi sína í höfuðborginni með tilkomu Hestadaga í Reykjavík. Höfundur er formaður borgarráðs.
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Ferðaþjónustan er ekki vandamálið – hún er hluti af lausninni Rannveig Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað ég skildi um Ísland þegar ég hætti að bera það saman við Napólí Valerio Gargiulo skrifar