Alexander frábær í góðum sigri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. nóvember 2010 21:23 Alexander Petersson og Sverre Andreas Jakobsson eigast við í síðasta mánuði. Nordic Photos / Bongarts
Alexander Petersson var fljótur að jafna sig á meiðslunum sem hann hlaut í leik Íslands og Austurríkis um síðustu viku því hann fór mikinn er Füchse Berlin vann Gummersbach á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Alexander var næstmakahæstur í liði Berlínar með sjö mörk en þjálfari Füchse Berlin er Dagur Sigurðsson. Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, vann Grosswallstadt, 31-23. Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen og Róbert Gunnarsson eitt. Guðjón Valur Sigurðsson er sem fyrr frá vegna meiðsla. Sverre Andreas Jakobsson lék í vörn Grosswallstadt en skoraði ekki í leiknum. Kári Kristján Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Wetzlar sem vann Ahlen-Hamm, 30-27. Einar Hólmgeirsson er enn frá vegna meiðsla í liði Ahlen-Hamm. Þórir Ólafsson, sem missti af leiknum gegn Austurríki vegna meiðsla, skoraði fjögur mörk fyrir Lübbecke sem vann Rheinland, 33-22. Sigurbergur Sveinsson skoraði fimm mörk fyrir Rheinland en Árni Þór Sigtryggsson ekkert. Það komu þó engir Íslendingar við sögu í stórslag deildarinnar í dag er Hamburg vann öruggan sigur á Flensburg á heimavelli, 32-24. Löwen komst á topp deildarinnar með sigrinum í dag, um stundarsakir að minnsta kosti þar sem liðið hefur leikið einum leik meira en flest önnur lið í deildinni. Löwen er með nítján stig, Füchse Berlin í fjórða sæti með sautján stig, Grosswallstadt í áttunda með tólf, Lübbecke í tólfta með sjö, Wetzlar í fjórtánda með fimm, Rheinland í sextánda með fjögur og Ahlen-Hamm í sautjánda með eitt stig. Úrslit dagsins: Lübbecke - Rheinland 33-22 Gummersbach - Füchse Berlin 32-34 Ahlen-Hamm - Wetzlar 27-30 Rhein-Neckar Löwen - Grosswallstadt 31-23 Hamburg - Flensburg 32-24
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Fleiri fréttir Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Sjá meira