Skoðun

Sjálfbær nýting skóga

Arnar Árnason skrifar um umhverfismál

Það er manninum nauðsynlegt að ganga ekki á náttúruauðlindir og valda ekki spjöllum á umhverfi sínu. En það er líka nauðsynlegt að taka upplýstar ákvarðanir í umhverfisvernd.

Því miður hafa ýmsar vafasamar meiningar um umhverfismál nánast öðlast sannleiksgildi. Hver hefur ekki fengið tölvupóst með innifalinni áskorun um að bjarga nú trjánum og prenta ekki út póstinn? Ef þú heldur að pappír ógni umhverfinu þá skaltu hugsa þig tvisvar um. Helmingurinn af trefjaefni til pappírsframleiðslu kemur úr endurunnum pappír. Hin 50% koma úr nytjaskógum, sem fara stækkandi með hverju ári, afgöngum frá byggingar- og húsgagnatimburvinnslu og frá nauðsynlegri grisjun á skóglendi.

Ný tré binda koltvísýring mun betur en gömul og því er ræktun nytjaskóga frábær leið til þess. Sameinuðu þjóðirnar hafa meira að segja lýst því yfir að trjá- og pappírsiðnaður leiki stórt hlutverk í að milda loftslagsbreytingarnar. Pappírsframleiðendur í Evrópu eru því mjög meðvitaðir um mikilvægi endurvinnslu og stuðla samviskusamlega að henni um alla álfuna. Skógar í Evrópu hafa stækkað um 30% frá miðri síðustu öld og er það fyrst og fremst meðvitaðri umhverfisstefnu pappírsframleiðenda að þakka.

Tökum fagnandi á móti kynningarbæklingum- og blöðum því pappírinn er í góðri sátt við umhverfið.

Höfundur er markaðsstjóri Odda.




Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Skoðun

Takk Trump!

Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Sjá meira


×