Tannvernd - börnin sem skila sér ekki Sigurður Benediktsson skrifar 4. febrúar 2010 06:00 Mikið hefur verið rætt um tannvernd barna á undanförnum misserum. Lýsingar af slæmri tannheilsu barna á Íslandi rata reglulega í fjölmiðla og náði sú umræða hæstu hæðum síðastliðinn vetur þegar samstarf Tannlæknafélags Íslands og tannlæknadeildar Háskóla Íslands leiddi til Hjálparvaktar fyrir börn sem búa við kröpp kjör. Lítið hefur þó breyst í skipulagi tannheilsumála á árinu sem liðið er þrátt fyrir að ráðamenn hafi lýst því yfir að við þetta yrði ekki lengur búið. Heildstætt kerfiNú er það svo að tannlæknar hafa ekki möguleika á að sjá hvort barn hafi skilað sér til tannlæknis í skoðun eða lokið þeirri meðferð sem þörf er á. Tannlæknir sér aðeins það barn sem kemur á hans starfsstöð og getur ekki fylgst með ef barn sækir meðferð annars staðar eða hefur hreinlega dottið úr meðferð. Oft kemur barn vegna bráðavanda en skilar sér síðan ekki í áframhaldandi heimsóknir. Enginn fylgist í raun með þessu og þótt Sjúkratryggingar Íslands greiði fyrir veitta meðferð er ekkert sem segir til um hvort henni sé lokið eða ekki og barnið getur því týnst í kerfinu. Mikilvægt er að rekið sé heildstætt kerfi þar sem fylgst er með komum barna til tannlækna og þannig búið um málin að ekki velti á fjárhagstöðu foreldra hvort barnið fái nauðsynlegt eftirlit og meðferð. Hér er mikilvægt að samvinna sé milli þeirra staða sem börn koma á, hvort sem um er að ræða heilsugæsluna, skólann eða tannlækna. Upplýsingar þurfa að flæða þarna á milli svo hægt sé að fylgjast með heimtum og grípa inn í ef börn skila sér ekki. Hver á að gæta bróður míns?Ekki má líta á tannheilsu sem eitthvað sérstakt fyribæri heldur að hún tengist mörgum þáttum sem snerta almennt heilbrigði barna. Munnhirða og gott matarræði skipta þar mestu en hér á Íslandi er t.d. gosdrykkjaþamb barna og unglinga gríðarlegt og á sama tíma heyrum við að börn á Íslandi séu að þyngjast og séu ekki nógu vel á sig komin líkamlega. Svo virðist sem tannheilsa íslenskra barna sé háð efnahagsstöðu foreldra þeirra því börn efnaminni foreldra hafa fleiri tannskemmdir en börn þeirra efnameiri. Hér er því um samfélagslegt mál að ræða og hætt er við að tannheilsu barna hraki enn frekar, nú þegar kjör fólks eru almennt að rýrna til mikilla muna. Heimtur barna til tannlækna hafa ekki verið nógu góðar og nú, eftir að efnahagskreppan skall á, eru vísbendingar um að enn færri börn skili sér til tannlækna. Það þarf því samstillt átak allra sem málið varða og þeir þurfa að taka höndum saman um að koma þessum málum í viðunandi horf. Höfundur er formaður Tannlæknafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar