Góð ráð dýr Finnur Oddsson skrifar 18. janúar 2010 06:00 Þegar horft er til þess tíma sem liðinn er frá hruni bankanna má sjá bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á þeirri þróun sem hefur átt sér stað. Hvað hið fyrra varðar, má segja að staðan nú sé skárri en hún hefði auðveldlega getað orðið. Samdráttur efnahagskerfisins hefur verið minni en spáð var, hluti bankakerfisins er þegar kominn úr beinni ríkiseign og gróska er í nýsköpunarstarfi. Hvað neikvæðu hliðina varðar stendur upp úr það mikla sundurlyndi, hnútukast og skotgrafahernaður sem hefur gegnsýrt umræðu frá októbermánuði árið 2008 og komið í veg fyrir hraðari og þróttmeiri endurreisn hagkerfisins. Það er eðli stjórnmálanna að setjast á rökstóla og skiptast á skoðunum um þær mikilvægu ákvarðanir sem ráðamönnum þjóðarinnar er ætlað að taka. Samhliða því eiga almenningur og stofnanir samfélagsins að leggja lóð sín á vogarskálarnir með þátttöku í umræðu líðandi stundar. Eðlilegt er að ekki séu allir sammála. Aftur á móti þá er engum til gagns að sóa tíma í tilgangslitla orðræðu sem að mestu gengur út á að rægja þær lausnir sem lagðar eru fram án þess að sýnt sé fram á betri kosti. Það er því miður að slík orðræða hefur einkennt pólitíska umræðu og virðast stjórnmálamenn um of fastir í hjólförum pólitískrar fortíðar sem erfitt virðist að sveigja frá. Í stað uppbyggilegrar og lausnadrifinnar umræða hefur verðmætum tíma og orku verið sóað í pólitískt þras og sjálfhverfa umræðu. Þetta á reyndar við um fleiri, því svo virðist sem fæstum sé leyfilegt að koma með tillögur til úrbóta, framfara og endurreisnar án þess að hugmyndirnar séu rægðar á miður málefnalegan hátt. Sjaldnast er lagt til atlögu við hugmyndirnar sjálfar heldur er í æ ríkari mæli lagt upp með að tortryggja flutningsmenn (eða stofnanir) þeirra. Þannig er sneitt framhjá málefnalegri rökræðu um gildi viðkomandi tillagna. Ljóst má vera að slíkt eðli þjóðfélagsumræðu dregur verulega úr vilja fólks til þátttöku. Ef persónulegar árásir og ómálefnalegar mótbárur eru óumflýjanlegur fylgifiskur þess að leggja fram tillögur að lausnum eða gagnrýni á fyrirliggjandi aðgerðir gæti fólk farið að líta svo á að góð ráð séu þeim einfaldlega of dýr. Fáir kæra sig um þátttöku í slíku leikriti. Þannig er hætt við því að Íslendingar verði fangar fortíðar sinnar, þar sem meira skiptir hvaðan hugmyndir koma en hversu góðar þær eru. Þetta er skaðleg þróun enda sjá augu betur en auga og fámenn þjóð líkt og Ísland má illa við að fækka enn frekar í þeim hópi sem getur lagt lóð sín á vogarskálar uppbyggingar. Aukinn sáttatónn á öllum sviðum samfélagsins er því grundvallarþáttur í efnahags- og samfélagslegri uppbyggingu landsins. Neikvæðni, hefnigirni, rætni og niðurrifsstarfsemi mun aftur á móti leiða til áframhaldandi efnahagslegrar hnignunar samhliða enn frekari samfélagslegri sundrung. Með þessum orðum er ekki átt við að ábyrgðarmenn þeirra ófara sem dunið hafa yfir landið eigi ekki að standa skil á verkum sínum. Þeim málum hefur verið komið í farveg sem vonandi skilar sanngjarnri niðurstöðu og almennri samfélagslegri sátt. Þangað til sú niðurstaða liggur fyrir er aftur á móti nauðsynlegt að verðmætum tíma og orku sé varið til uppbyggilegra verka. Við stöndum á slíkum tímamótum að nú verða hagsmunir heildarinnar að ráða för. Minna verður til skiptanna og ekki verður komist hjá almennri lífskjaraskerðingu. Umræðan þarf því fyrst og fremst að snúast um hvernig hægt sé að lágmarka fyrirsjáanlegan skaða og ekki eiga að gilda önnur þátttökuskilyrði í endurreisn íslenska hagkerfisins en vilji til góðra verka. Málefnalegur ágreiningur er eðlilegur en svo fremi sem virk og upplýst skoðanaskipti eiga sér stað er líklegt að skynsamleg niðurstaða náist í erfiðum málum. Viðskiptaráð mun halda áfram að leggja sín lóð á vogarskálarnar með lausnadrifinni umræðu um framtíð íslensks atvinnulífs. Nú eru góð ráð dýr og því nauðsynlegt að enginn láti sitt eftir liggja í endurreisn hagkerfisins. Víðtækt samráð við hagsmunahópa og almenning, uppbyggilegt samstarf stjórnmálaflokka, áhersla á heildarhagsmuni og málefnaleg umræða eru vörður sem ætti að fylgja á þeirri vegferð. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Veiðigjöld, gaslýsingar og valdníðsla Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Sniðgangan á Rapyd slær öll met Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar Skoðun Árið 2023 kemur aldrei aftur Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Trumpistar eru víða Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Við getum gert betur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Ábyrg stefna í útlendingamálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Týndu hermennirnir okkar Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson skrifar Sjá meira
Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun
Skoðun Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar
Skoðun Pólitískt hugrekki og pólitískt hugleysi: ólík stefna tveggja systurflokka Birgir Finnsson skrifar
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar
Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar
Vegið að íslenska lífeyriskerfinu Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín Skoðun