Skoðun

Fjórflokknum gefin fingurinn

Friðrik Indriðason skrifar

Íslenskur almenningur virðist endanlega búinn að fá upp í kok af stjórnmálamönnum landsins. Hann hefur gefið fjórflokknum fingurinn svo um munar.

Ný skoðanakönnum sýnir að grínframboðið Besti flokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í borginni og það svo um munar. Slíkt hlýtur að vera meira kjaftshögg fyrir frambjóðendur annarra flokka þar á bæ en þeir fá við ráðið.

Væri ég pólitíkus í dag og í framboði fyrir einhvern fjórflokkanna í borginni myndi ég tilkynna um skyndileg bráðaveikindi sem gerðu mér ókleyft að halda framboði mínu til streitu. Ég á hinsvegar ekki von á neinni slíkri tilkynningu. Þeir sem skipa efstu sætin á framboðslistum fjórflokkanna í borginni munu örugglega hugsa sem svo: „Þetta reddast á kjördeginum. Almenningur er ekki svona heimskur."

Ég tel nefnilega að almenningur muni einmitt verða „svona heimskur". Þetta er jú eina tækifæri hans á nokkurra ára fresti til þess að láta í ljós skoðun sína á stjórnmálastétt landsins eins og hún leggur sig og meta hana að verðleikum.

Ég hef löngum sagt að í lýðræðisþjóðfélagi fái þjóðin þá þingmenn sem hún á skilið. Þeir eru jú kosnir með meirihluta atkvæða.

Það er svo annað mál að innst inni tel ég að menn á borð við Jón Gnarr, Einar Benediktsson, Óttar Proppé og fleiri á þessum lista eigi fyllilega jafnmikið erindi í borgarstjórn og flestir þeir „jólasveinar" sem þar hafa vermt sætin undanfarin fjögur ár. Ég tel raunar að við borgarbúar eigum þá félaga skilið.

Það er eiginlega leitun að öðru eins ömurlegu liði og ráðið hefur borginni s.l. kjörtímabil. Um það mætti hafa sömu orð og Styrmir Gunnarsson fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins hafði í skýrslu sinni til rannsóknarnefndar Alþingis..." Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta."

Þessi orð Styrmis hafa hvergi komið jafnskýrlega í ljós eins og í stjórn borgarinnar undanfarin fjögur ár. Ég vinn í blaðamennskubransanum og á sjálfur oft erfitt með að telja alla borgarstjórana og meirihlutana upp í réttri tímaröð. Hvað þá allt klúðrið.

Borgarbúar er nú tilbúnir að gefa grínframboði sjéns því þeir hafa vart í raun annan valkost. Allavega ekki eftir að hafa horft fram á lítið annað undanfarin fjögur ár en ...engin prinsipp, engar hugsjónir og bara tækifærismennsku og valdabaráttu.

Verði öðrum flokkum en gríninu að góðu á kjördag. Ef ég nenni að mæta á annað borð fá Jón Gnarr og félagar mitt atkvæði.

Res ipsa logiutur








Skoðun

Skoðun

Hvað er verið að leið­rétta?

Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar

Sjá meira


×