Aukið öryggi og ánægðari farþegar 24. mars 2010 06:00 Starfsmenn Strætó bs. fagna þessa dagana frábærum árangri á tveimur sviðum, sem full ástæða er til að halda á lofti: Á dögunum fékk fyrirtækið forvarnaviðurkenningu VÍS fyrir góðan árangur í forvarnamálum - og í síðasta þjónustumati mældist gæðavísitala Strætó bs. hærri en nokkru sinni. Hvort tveggja má þakka samstilltu átaki frábærra starfsmanna sem kappkosta að bjóða farþegum hagkvæman, öruggan og umhverfisvænan valkost í samgöngum. Auk þess að bæta umferðaröryggi hafa umtalsverðir fjármunir sparast á síðustu árum eftir að farið var að taka með markvissum hætti á forvarnamálum í góðu samstarfi við VÍS. Síðastliðið ár hefur verið unnið að atvikaskráningu hjá Strætó bs. Þegar hefur verið sýnt fram á mælanlegan árangur forvarnastarfsins. Fjöldi tjóna á árinu 2006 var 304 en hefur minnkað ár frá ári og var kominn niður í 197 á síðasta ári, sem er frábær árangur. Með atvikaskráningunni eru upplýsingar um öll tjón og tjónaaðstæður skráðar á nákvæmari hátt en áður. Um leið gefast meiri möguleikar á áhættugreiningu og eftirfylgni til úrlausna. Skráningin hefur t.d. vakið athygli á ákveðnum stöðum þar sem mikill fjöldi tjóna verður og varhugaverðum aðstæðum. Slíkar upplýsingar fækka tjónum. Árlega er gert þjónustumat meðal farþega. Í niðurstöðum nýjasta þjónustumatsins hefur vegin gæðavísitala þjónustu Strætó bs. aldrei verið hærri en nú. Þetta skýrist einkum af því að ánægja farþega með hitastig og innanþrif vagna mælist meiri en áður, stundvísi og aksturslag hefur batnað og viðmót vagnstjóra mælist mun betra en áður. Um 650 farþegar tóku þátt í þjónustumatinu. Þessi árangur náðist ekki af sjálfu sér. Hann er beinn afrakstur verkefna sem ráðist hefur verið í innan fyrirtækisins að undanförnu. Þar má nefna hertar kröfur um þrif vagna og tímaáætlanir einstakra leiða sæta reglubundinni endurskoðun, sem hefur leitt til bættrar stundvísi. Nýtt þjónustuver Strætó veitir alla farþegaþjónustu ásamt samræmingu og skipulagi alls aksturs á þjónustusvæðinu. Þá hefur aðgengi farþega að upplýsingum og kortakaupum á vef Strætó verið stórbætt. Nú nýtir um fjórðungur viðskiptavina vefinn til að kaupa strætókort og farmiða. Hjá Strætó bs. starfar öflugur hópur fólks sem hefur í fyrirrúmi stundvísi, áreiðanleika, fagmennsku og gæði. Við höfum gaman af að sjá mælanlegan árangur af verkum okkar og hyggjumst ekki láta staðar numið hér, heldur bæta okkur enn frekar á komandi árum. Höfundur er framkvæmdastjóri Strætós bs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Starfsmenn Strætó bs. fagna þessa dagana frábærum árangri á tveimur sviðum, sem full ástæða er til að halda á lofti: Á dögunum fékk fyrirtækið forvarnaviðurkenningu VÍS fyrir góðan árangur í forvarnamálum - og í síðasta þjónustumati mældist gæðavísitala Strætó bs. hærri en nokkru sinni. Hvort tveggja má þakka samstilltu átaki frábærra starfsmanna sem kappkosta að bjóða farþegum hagkvæman, öruggan og umhverfisvænan valkost í samgöngum. Auk þess að bæta umferðaröryggi hafa umtalsverðir fjármunir sparast á síðustu árum eftir að farið var að taka með markvissum hætti á forvarnamálum í góðu samstarfi við VÍS. Síðastliðið ár hefur verið unnið að atvikaskráningu hjá Strætó bs. Þegar hefur verið sýnt fram á mælanlegan árangur forvarnastarfsins. Fjöldi tjóna á árinu 2006 var 304 en hefur minnkað ár frá ári og var kominn niður í 197 á síðasta ári, sem er frábær árangur. Með atvikaskráningunni eru upplýsingar um öll tjón og tjónaaðstæður skráðar á nákvæmari hátt en áður. Um leið gefast meiri möguleikar á áhættugreiningu og eftirfylgni til úrlausna. Skráningin hefur t.d. vakið athygli á ákveðnum stöðum þar sem mikill fjöldi tjóna verður og varhugaverðum aðstæðum. Slíkar upplýsingar fækka tjónum. Árlega er gert þjónustumat meðal farþega. Í niðurstöðum nýjasta þjónustumatsins hefur vegin gæðavísitala þjónustu Strætó bs. aldrei verið hærri en nú. Þetta skýrist einkum af því að ánægja farþega með hitastig og innanþrif vagna mælist meiri en áður, stundvísi og aksturslag hefur batnað og viðmót vagnstjóra mælist mun betra en áður. Um 650 farþegar tóku þátt í þjónustumatinu. Þessi árangur náðist ekki af sjálfu sér. Hann er beinn afrakstur verkefna sem ráðist hefur verið í innan fyrirtækisins að undanförnu. Þar má nefna hertar kröfur um þrif vagna og tímaáætlanir einstakra leiða sæta reglubundinni endurskoðun, sem hefur leitt til bættrar stundvísi. Nýtt þjónustuver Strætó veitir alla farþegaþjónustu ásamt samræmingu og skipulagi alls aksturs á þjónustusvæðinu. Þá hefur aðgengi farþega að upplýsingum og kortakaupum á vef Strætó verið stórbætt. Nú nýtir um fjórðungur viðskiptavina vefinn til að kaupa strætókort og farmiða. Hjá Strætó bs. starfar öflugur hópur fólks sem hefur í fyrirrúmi stundvísi, áreiðanleika, fagmennsku og gæði. Við höfum gaman af að sjá mælanlegan árangur af verkum okkar og hyggjumst ekki láta staðar numið hér, heldur bæta okkur enn frekar á komandi árum. Höfundur er framkvæmdastjóri Strætós bs.
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar