Rökin fyrir fyrningarleiðinni? 18. febrúar 2010 06:00 Hjörtur Gíslason skrifar um fyrningu aflaheimilda Með margræðni tungumálsins og hálfkveðnar setningar að leiðarljósi hefur útvegsmönnum verið lýst sem fjandmönnum fólksins um leið og skírskotað hefur verið til frumstæðra hvata eins og öfundar, en hvorki skynsemdar né vitsmuna. Klifað hefur verið á fáeinum merkingarlitlum slagorðum sem eru endurtekin sí og æ." Þessi tilvitnun gæti allt eins hafa verið skrifuð í gær en staðreyndin er sú að hún er frá árinu 2003 og sótt í grein Sigurðar Líndal, lögfræðings og fyrrverandi prófessors, sem hann skrifaði í apríl það ár. Við lestur greinarinnar verður manni ljóst að umræðan sjö árum síðar hefur lítið breyst. Gömlu andlitin eru flest á sínum stað með örfáum undantekningum og sömu slagorðum beitt. Ég leyfi mér að vitna aftur í grein Sigurðar þar sem hann segir: „Ég geri enga athugasemd þótt menn vilji breyta stjórnkerfi fiskveiða, telji t.d. handstýringu stjórnmálamanna vænlegri en markaðslausn í anda atvinnufrelsis og sérskatta á útgerðina réttlætismál. En ég fer fram á að menn tjái sig eins og þeir séu að tala við vitiborið fólk og segi skýrt og skilmerkilega hvað þeir gagnrýni, hverju þeir vilji breyta og rökstyðji það." Það er einmitt þetta ákall lagaprófessorsins um rökstuðning sem mig langar til að gera að umtalsefni. Ríkisstjórnin áformar að hefja fyrningu aflaheimilda í haust. Það liggur ljóst fyrir að fyrningarleiðin færir þjóðinni ekki aukin verðmæti. Félagar mínir í útgerð hafa hver á fætur öðrum komið fram undanfarið og varað við þessum hugmyndum. Forystumenn sjómannasamtakanna vara við þeim. Sveitarstjórnir um land allt vara við þeim. Stjórnvöld hlusta ekki. Útvegsmenn hafa látið endurskoðunarfyrirtækið Deloitte vinna skýrslu um áhrif fyrningarleiðarinnar á sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi. Niðurstaðan er einföld en ógnvekjandi: Á aðeins fáum árum leiðir hún til gjaldþrots útgerða. Stjórnvöld hafa ekki vefengt niðurstöðurnar. Þaðan af síður virðast þau hafa unnið faglega úttekt á eigin vegum á áhrifum þessara hugmynda. Sé það ásetningur þeirra að fara þessa leið er þá til of mikils mælst að þau leggi fram rök máli sínu til stuðnings? Höfundur er stjórnarformaður Ögurvíkur hf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Auglýsingaskrum Landsvirkjunar Stefán Georgsson Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fasteignagjöld eru lág í Reykjavík Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerræðisleg áform í anda Ráðstjórnarríkjanna Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Nýbakaðir foreldrar og óbökuð loforð Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar bráðamóttakan drepur þig hraðar Hólmfríður Ásta Hjaltadóttir skrifar Skoðun Samkeppnin tryggir hag neytenda Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Stóðhryssur ekki moldvörpur Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Við getum gert betur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hvernig hljómar 100.000 kr. mánaðarlegur samgöngustyrkur? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Ábyrg stefna í útlendingamálum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Týndu hermennirnir okkar Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Gerist þetta aftur á morgun? Ísak Hilmarsson skrifar Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Staða þorpshálfvita er laus til umsóknar Jón Daníelsson skrifar Skoðun Að reikna veiðigjald af raunverulegum aflaverðmætum Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Fréttir af baggavélum og lömbum Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Auglýsingaskrum Landsvirkjunar Stefán Georgsson skrifar Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar Skoðun Takk Trump! Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Fíllinn á teikniborði Landsvirkjunar Soffía Sigurðardóttir skrifar Skoðun Tími til að staldra við Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvar er fyrirsjáanleikinn, forsætisráðherra? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun 25 metrar í Fannborg Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Krossferðir - Íslamófóbía - Palestína Kristján Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Gefum heimild fyrir kyrrð og kærleik Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Frumvarp til ólaga Jón Ásgeir Sigurvinsson skrifar Skoðun Hervirki í höfuðborg - Svefngenglar við stjórnvölinn Örn Sigurðsson skrifar Skoðun „Drifkraftur að óöryggi og óvissu“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Klerkaveldi, trú og stjórnmál Sigurður Árni Þórðarson skrifar Sjá meira
Hjörtur Gíslason skrifar um fyrningu aflaheimilda Með margræðni tungumálsins og hálfkveðnar setningar að leiðarljósi hefur útvegsmönnum verið lýst sem fjandmönnum fólksins um leið og skírskotað hefur verið til frumstæðra hvata eins og öfundar, en hvorki skynsemdar né vitsmuna. Klifað hefur verið á fáeinum merkingarlitlum slagorðum sem eru endurtekin sí og æ." Þessi tilvitnun gæti allt eins hafa verið skrifuð í gær en staðreyndin er sú að hún er frá árinu 2003 og sótt í grein Sigurðar Líndal, lögfræðings og fyrrverandi prófessors, sem hann skrifaði í apríl það ár. Við lestur greinarinnar verður manni ljóst að umræðan sjö árum síðar hefur lítið breyst. Gömlu andlitin eru flest á sínum stað með örfáum undantekningum og sömu slagorðum beitt. Ég leyfi mér að vitna aftur í grein Sigurðar þar sem hann segir: „Ég geri enga athugasemd þótt menn vilji breyta stjórnkerfi fiskveiða, telji t.d. handstýringu stjórnmálamanna vænlegri en markaðslausn í anda atvinnufrelsis og sérskatta á útgerðina réttlætismál. En ég fer fram á að menn tjái sig eins og þeir séu að tala við vitiborið fólk og segi skýrt og skilmerkilega hvað þeir gagnrýni, hverju þeir vilji breyta og rökstyðji það." Það er einmitt þetta ákall lagaprófessorsins um rökstuðning sem mig langar til að gera að umtalsefni. Ríkisstjórnin áformar að hefja fyrningu aflaheimilda í haust. Það liggur ljóst fyrir að fyrningarleiðin færir þjóðinni ekki aukin verðmæti. Félagar mínir í útgerð hafa hver á fætur öðrum komið fram undanfarið og varað við þessum hugmyndum. Forystumenn sjómannasamtakanna vara við þeim. Sveitarstjórnir um land allt vara við þeim. Stjórnvöld hlusta ekki. Útvegsmenn hafa látið endurskoðunarfyrirtækið Deloitte vinna skýrslu um áhrif fyrningarleiðarinnar á sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi. Niðurstaðan er einföld en ógnvekjandi: Á aðeins fáum árum leiðir hún til gjaldþrots útgerða. Stjórnvöld hafa ekki vefengt niðurstöðurnar. Þaðan af síður virðast þau hafa unnið faglega úttekt á eigin vegum á áhrifum þessara hugmynda. Sé það ásetningur þeirra að fara þessa leið er þá til of mikils mælst að þau leggi fram rök máli sínu til stuðnings? Höfundur er stjórnarformaður Ögurvíkur hf.
Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun
Skoðun Opið svar til formanns Samleik- Útsvarsgreiðendur borga leikskólann í Kópavogi! Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar
Skoðun Frá Írak til Gaza: Hvað höfum við lært af lygunum og stríðsbröltinu? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öryggi og varnir Íslands Kristrún Frostadóttir,Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Inga Sæland skrifar
Tími til að notast við réttar tölur Sigurjón Þórðarson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Eiríkur Björn Björgvinsson Skoðun