Innlent

Icelandair breytir flugáætlun í fyrramálið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugáætlun vegna þess að spár gefa til kynna að Keflavíkurflugvöllur gæti lokast á morgun vegna eldgoss. Staðan er ennfremur óljós varðandi flugvelli á Bretlandseyjum.

Brottför flugs til Kaupmannahafnar, Osló, Stokkhólms, Helsinki, London, Manchester/Glasgow, Frankfurt, Amsterdam og Parísar í fyrramálið hefur verið flýtt til klukkan 05.00. Þá hefur hádegisflugi FI 212 til Kaupmannahafnar verið flýtt til klukkan 09.00.

Nánari upplýsingar um flug síðdegis á morgun munu verða gefnar í fyrramálið þegar betri spár liggja fyrir. Farþegar hvattir til þess að fylgjast með fréttum í fjölmiðlum, og upplýsingum um komu- og brottfarartíma á www.icelandair.is og vefmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×