Þingmenn þiggi bara laun fyrir þingmennsku Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. desember 2010 22:01 Ragnheiður Ríkharðsdóttir vill að þingmenn þiggi bara laun fyrir þingmennsku á meðan þeir sitja á Alþingi.
Það kemur vel til greina að setja reglur um að þingmenn þiggi ekki önnur laun en fyrir þingmennsku þann tíma sem þeir sitja á Alþingi. Þetta er í það minnsta mat Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem á sæti í forsætisnefnd Alþingis og menntamálanefnd. Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, er einn þeirra 28 sem þiggja heiðurslaun listamanna á næsta ári. Hann fær tæpar 1600 þúsund krónur frá Alþingi vegna þessa, samkvæmt breytingatillögu sem gerð hefur verið við fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Ákveði Þráinn að greiða atkvæði um fjárlagafrumvarpið mun hann því taka ákvörðun um fjárframlög úr ríkissjóði í eigin vasa. Ragnheiður Ríkharðsdóttir segist vonast til þess að Þráinn muni sitja hjá þegar að komi að því að greiða atkvæði um þennan lið. Hann hafi ekki haft sig frammi við umræðu um heiðurslaun þegar hún hefur farið fram í menntamálanefnd, en Þráinn á sæti í nefndinni. Aðspurð segir Ragnheiður að það væri ef til vill eðlilegt að þingmenn þæðu einungis laun fyrir þingmennsku á meðan að þeir sætu á Alþingi. „Þannig að þeir þæðu laun sem þingmenn en ekki fyrir eitthvert annað starf sem þeir gegna einhversstaðar annarsstaðar eða í einhverjum nefndum eða ráðum,“ segir Ragnheiður. Þetta ætti líka við um heiðurslaun listamanna. „Þannig að menn afsöluðu sér þá þeim launum sem þeir þiggja á meðan að þeir gegna þingmannsstörfum. Mér þætti það svona eðlilegast í ferlinu," segir Ragnheiður.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira