Forseta settar siðareglur 27. apríl 2010 06:30
Embætti forseta Íslands verða settar siðareglur. Undirbúningur verksins er hafinn í stjórnarráðinu þar sem meðal annars hefur verið skoðað með hvaða hætti reglurnar verða festar í sessi. Kemur til álita að færa þær í lög um laun forsetans eða gefa þær út með forsetabréfi. Forsetabréf eru ein tegund stjórnsýslufyrirmæla en aðrar eru forsetaúrskurðir og reglugerðir ráðherra. Ákvörðun um setningu siðareglna forseta kemur í kjölfar útgáfu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Vinnuhópur um siðferði komst að þeirri niðurstöðu að æskilegt væri að forsetaembættið setti sér slíkar reglur. Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Garðabæ fyrir tíu dögum sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra að í ljósi skýrslunnar þyrfti að endurskoða stöðu forsetans og setja embætti hans siðareglur. Hefur hún nú sett undirbúning þess af stað. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er siðareglunum ætlað að ramma inn starfshætti forsetaembættisins. Um leið er horft til þess að fjallað verði með víðtækari hætti um eðli og hlutverk forsetaembættisins á stjórnlagaþingi en frumvarp um það liggur fyrir Alþingi. Í ráði er að siðareglurnar verði unnar í samvinnu stjórnarráðsins og forsetaembættisins. Ljóst er að forsetinn hefur aðkomu að gildistöku siðareglnanna enda þarf hann að staðfesta breytingar á lögum um laun sín, verði sú leið farin, eða gefa út forsetabréfið, verði sá háttur ofan á. Í kjölfar útgáfu skýrslu rannsóknarnefndarinnar lýsti Ólafur Ragnar Grímsson þeirri skoðun sinni að óþarft væri að setja embættinu sérstakar siðareglur. - bþs
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira