Höfuðstólslækkun á eignaleigusamningum fyrirtækja 25. janúar 2010 10:04
Frá og með 27. janúar geta fyrirtæki og einstaklingar í rekstri sem eru í viðskiptum við Íslandsbanka Fjármögnun fengið lækkun á höfuðstól eignaleigusamninga í erlendri mynt. Lækkunin getur numið allt að 25% og er breytileg eftir samsetningu mynta í hverjum samningi. Í tilkynningu segir að um leið er samningnum breytt úr erlendri mynt í íslenskar krónur með breytilegum óverðtryggðum vöxtum. Íslandsbanki var fyrsti bankinn til að bjóða uppá höfuðstólsleiðréttingar fyrir einstaklinga bæði á íbúðarlánum og bílafjármögnun. Næsta skref er að bjóða fyrirtækjum og rekstraraðilum viðlíka úrræði, og er þetta fyrsti áfanginn í því ferli. Höfuðstólslækkun á eignaleigusamningum felur í sér að: Höfuðstóllinn lækkar og færist um leið í íslenskar krónur með breytilegum óverðtryggðum vöxtum Vaxtakjörin eru 12,1% breytilegir vextir en veittur er 2,6 prósentustiga afsláttur af vöxtum fyrsta árið og verða þeir því 9,5% miðað við núverandi vaxtakjör Íslandsbanka Fjármögnunar. Í flestum tilfellum lækka greiðslur við höfuðstólslækkun. Hægt er að lækka greiðslur enn frekar með því að lengja samninginn um ¾ af eftirstöðvatíma samningsins þó að hámarki um 36 mánuði. Hægt verður að sækja um höfuðstólslækkun í gegnum vef bankans www.islandsbanki.is/fjarmognun. Skilyrði fyrir höfuðstólslækkun er að viðkomandi samningur sé í skilum. „Við höfum frá því í nóvember síðastliðnum boðið einstaklingum höfuðstólslækkun á bílasamningum og bílalánum í erlendri mynt ásamt öðrum úrræðum fyrir viðskiptavini í greiðsluerfiðleikum," segir Ingvar Stefánsson, yfirmaður Íslandsbanka Fjármögnunar í tilkynningunni. „Um 3.500 viðskiptavinir hafa nýtt sér þessi úrræði og þar af eru um 2.500 sem hafa sótt um höfuðstólslækkun, sem sýnir að þetta er úrræði sem nýtist mörgum mjög vel. Fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar í rekstri eru með eignaleigusamninga í erlendri mynt hjá Íslandsbanka Fjármögnun og því er það von okkar að þessi lausn nýtist breiðum hópi viðskiptavina. Í raun má segja að lausnin sé tvíþætt því hún bæði lækkar höfuðstól og greiðslubyrði."
Mest lesið Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Play tekur flugið til Agadir Viðskipti innlent Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Viðskipti innlent Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Viðskipti innlent Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Viðskipti innlent Ætla ekki að láta norska olíusjóðinn sniðganga Ísrael Viðskipti „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Viðskipti innlent Bein útsending: Ársfundur Samáls Viðskipti innlent Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sannfærður um að fjárfestingin standi undir sér Stefán endurkjörinn formaður Þorsteinn Már hættir hjá Samherja Samþykktu að selja Perluna fyrir 3,5 milljarða Einar Bárðarson tekur við umdeildu félagi Brynja yfirmaður markaðseftirlits Nasdaq Iceland Gísli Þór og Jón Garðar nýir framkvæmdastjórar hjá Terra Ráðin þjónustustjóri atNorth á Akureyri Gunnar Örn og Haraldur Hilmar nýir forstöðumenn hjá Arion Setja spurningarmerki við umfjöllun um Climeworks Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum Stjórnarandstaðan í vasa hagsmunaaðila Af og frá að slakað sé á aðhaldi Sjá meira