Allt sem nöfnum tjáir að nefna Ingólfur Steinsson skrifar 4. ágúst 2010 06:00 Ef einhver skyldi halda að maður þyrfti að fara í bíó eða á vídeóleigu til að ná sér í hrollvekju þá vil ég benda hinum sama á að kveikja bara á fréttunum. Þar eru allar þær hrollvekjur sem maður þarf og meira til. Um daginn heyrði ég t.d. að nú stæði til að byggja þrjú eða fjögur glæsihótel í Reykjavík og bæta þar með við fleiri hundruð herbergjum. Reyndar var tekið fram í fréttinni að töluvert vantaði upp á að þau herbergi sem þegar eru í boði séu fullnýtt. Ég fékk léttan hroll og sá fyrir mér glerhallirnar rísa eina af annarri. Verst þótti mér þó að heyra að ein þessara bygginga ætti að rísa í gamla slippnum í Reykjavík. Í „góðærinu“ fóru menn langt með að eyðileggja slippinn og nú skal rísa þar hótel, í sönnum 2007 stíl ef ég þekki arkitekta og byggingaverktaka þessa lands rétt. Ég hef komið í gömlu verbúðirnar við hliðina á slippnum nokkrum sinnum í sumar. Búið er að glæða þær lífi á einfaldan og skemmtilegan hátt sem minnir helst á eitthvað sem maður hefur til þessa aðeins séð í útlöndum en er greinilega líka hægt að gera hér á landi. Það þarf kannski ekki endilega að reisa glerhöll með skútulægi og þyrlupalli. Enda virðast þessi þrjú gömlu verbúðarhús draga að sér einkar fjölbreytt mannlíf. Sem ég sat þarna og drakk frábært kaffið á Kaffi Haítí fékk ég hugmynd sem mig langar að gauka að borgarstjórnarfólki. Af því að nú á allt að vera svo fyndið og frábært og lífið svo fallegt og skemmtilegt, hvernig væri þá að slaufa þessari hótelhugmynd. Reisa í staðinn svona fimm til tíu verbúðir í stíl við þær þrjár sem eru þarna fyrir. Láta þær teygja sig áfram inn á það svæði í slippnum sem laust er. Leigja svo út plássið á viðráðanlegu verði til listafólks, listiðnaðar, handverk-stæða af ýmsu tagi, smábúða, kaffihúsa, matstaða. Allt sem nöfnum tjáir að nefna gæti fengið þar inni svo fremi það hafi aðdráttarafl og fullnægi kröfunni um skemmtilegheit. Ég er klár á því að slíku framtaki mundi fylgja iðandi mannlíf allt árið um kring og auðvitað sérstaklega á sumrin. Erlendir sem innlendir ferðamenn mundu hópast þangað og borgarbúar sömuleiðis. Þetta hefði líka þann augljósa kost að forða okkur frá þeim grimmu örlögum að fá yfir okkur enn eina glerhöllina og það á einum viðkvæmasta stað borgarinnar. Þetta er svæði sem ber að vernda og þar á að lofa andblæ og stíl liðins tíma að njóta sín. Ég skora á besta fólkið og félaga að skoða þessa hugmynd í fullri alvöru. Eitt af því sem það talaði um fyrir kosningarnar var að það þyrfti að gera hlutina öðru vísi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar