Miði í happdrætti helvítis 13. júlí 2010 07:00 Fyrir stuttu náðu íslenskir löggæslumenn stórri sendingu amfetamíns. Það var sending sem svarar til eins árs amfetamín-neyslu hér á landi sé miðað við síðustu ár. Við getum þakkað íslenskum löggæslumönnum að ekki varð úr þessum innflutningi. Þessi smygltilraun er alvarlegur glæpur. Við getum spurt okkur eftirfarandi spurninga: Hversu mörg dauðsföll eða sjálfsvíg eða jafnvel morð búa í þessum efnum? Hversu margar líflátshótanir, ógnanir og handrukkanir? Hversu mikil angist barna fíkniefnaneytenda? Hversu margar vökunætur ráðvilltra foreldra eða kvíðafullra systkina? Hversu margar lygar? Já hversu mikil vonbrigði búa í þessum efnum? Og svona getum við spurt svipaðra spurninga, endalaust. Að undanförnu höfum við séð og heyrt fréttir um vaxandi ofbeldi og ógnanir gegn lögreglunni? Í flestum tilvikum er þetta fólk undir áhrifum áfengis eða fíkniefna en í grunninn er það alla jafnan ósköp venjulegt fólk sem hefur bilast af áfengis- eða annarri vímuefnaneyslu. Manneskjur sem einu sinni voru börn er áttu fallega drauma um bjarta framtíð. Drauma sem snerust um allt annað en að sjúga upp í nef sitt amfetamín, kókaín, drekka bjór eða brennivín eða borða gull í glæstum veislusölum peningadýrkenda. Á síðustu árum og mánuðum höfum við misst marga vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu. Mjög oft í umferðarslysum og margs konar öðrum óhöppum sem rakin verða beint eða óbeint til þeirra vímuefna sem eru á boðstólum. Það er óhætt að segja að þau sem byrja að drekka séu orðin handahafar miða í happdrætti helvítis, þar sem „vinningarnir" eru hvers kyns ógæfa, dauði eða slys. Ég hvet fólk til að íhuga þessi mál af mikilli alvöru, ekki síst á þeim tímum sem við verðum að nýta alla okkar kraft til þess að reisa landa okkar úr rústum hruns sem örugglega má rekja að nokkru leyti til áfengis- og fíkniefnaneyslu. Brýnum nú fyrir börnum okkar og ungmennum að lífið sé of dýrmætt til að eyða því við altari Bakkusar, þar sem villuljósin loga og falsvitar brenna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Bútasaumur og bensínstöðvar Við sem stóðum fyrir átakinu Akureyri í öndvegi töldum miklu skipta að heildarbragur yrði á frekari uppbyggingu í miðbænum og samræmis gætt þannig að hann myndaði vistvæna heild frá Samkomuhúsinu og norður fyrir íþróttavöllinn. Með þessu yrði vikið frá því fyrirkomulagi sem hafði ríkt og oft 13. júlí 2010 06:00 Mest lesið Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Skoðun Skoðun Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Sjá meira
Fyrir stuttu náðu íslenskir löggæslumenn stórri sendingu amfetamíns. Það var sending sem svarar til eins árs amfetamín-neyslu hér á landi sé miðað við síðustu ár. Við getum þakkað íslenskum löggæslumönnum að ekki varð úr þessum innflutningi. Þessi smygltilraun er alvarlegur glæpur. Við getum spurt okkur eftirfarandi spurninga: Hversu mörg dauðsföll eða sjálfsvíg eða jafnvel morð búa í þessum efnum? Hversu margar líflátshótanir, ógnanir og handrukkanir? Hversu mikil angist barna fíkniefnaneytenda? Hversu margar vökunætur ráðvilltra foreldra eða kvíðafullra systkina? Hversu margar lygar? Já hversu mikil vonbrigði búa í þessum efnum? Og svona getum við spurt svipaðra spurninga, endalaust. Að undanförnu höfum við séð og heyrt fréttir um vaxandi ofbeldi og ógnanir gegn lögreglunni? Í flestum tilvikum er þetta fólk undir áhrifum áfengis eða fíkniefna en í grunninn er það alla jafnan ósköp venjulegt fólk sem hefur bilast af áfengis- eða annarri vímuefnaneyslu. Manneskjur sem einu sinni voru börn er áttu fallega drauma um bjarta framtíð. Drauma sem snerust um allt annað en að sjúga upp í nef sitt amfetamín, kókaín, drekka bjór eða brennivín eða borða gull í glæstum veislusölum peningadýrkenda. Á síðustu árum og mánuðum höfum við misst marga vegna áfengis- eða fíkniefnaneyslu. Mjög oft í umferðarslysum og margs konar öðrum óhöppum sem rakin verða beint eða óbeint til þeirra vímuefna sem eru á boðstólum. Það er óhætt að segja að þau sem byrja að drekka séu orðin handahafar miða í happdrætti helvítis, þar sem „vinningarnir" eru hvers kyns ógæfa, dauði eða slys. Ég hvet fólk til að íhuga þessi mál af mikilli alvöru, ekki síst á þeim tímum sem við verðum að nýta alla okkar kraft til þess að reisa landa okkar úr rústum hruns sem örugglega má rekja að nokkru leyti til áfengis- og fíkniefnaneyslu. Brýnum nú fyrir börnum okkar og ungmennum að lífið sé of dýrmætt til að eyða því við altari Bakkusar, þar sem villuljósin loga og falsvitar brenna.
Bútasaumur og bensínstöðvar Við sem stóðum fyrir átakinu Akureyri í öndvegi töldum miklu skipta að heildarbragur yrði á frekari uppbyggingu í miðbænum og samræmis gætt þannig að hann myndaði vistvæna heild frá Samkomuhúsinu og norður fyrir íþróttavöllinn. Með þessu yrði vikið frá því fyrirkomulagi sem hafði ríkt og oft 13. júlí 2010 06:00
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar