Viðskipti innlent

Samkeppnishæfni Íslands talin í meðallagi

"Þetta styrkir okkur í trúnni um hvar við þurfum helst að bæta okkur á næstu árum," segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, um nýja skýrslu svissneska háskólans Institute for Management Development um samkeppnishæfni þjóða. Samkeppnishæfni Íslands er talin í meðallagi í hópi vestrænna ríkja í skýrslunni.

Helstu verkefni íslensku þjóðarinnar á árinu 2010 eru að hraða umbótum í opinbera geiranum, endurskipuleggja hagkerfið og örva það, draga erlenda fjárfestingu inn í landið og endurreisa trúverðugleika landsins út á við ef marka má skýrsluna.

Skýrslan tók til 58 landa um allan heim og var kynnt á blaðamannafundi í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu í morgun. Skýrslan er byggð á yfir 300 hagvísum auk könnunar meðal stjórnenda í atvinnulífinu og tekur til efnahagslegrar frammistöðu, samfélagslegra innviða, skilvirkni stjórnvalda og skilvirkni atvinnulífsins.

Heilt á litið er samkeppnishæfni Íslands talin í meðallagi miðað við önnur lönd sem skýrslan tók til, en landið er metið í 30. sæti. Singapúr þykir samkeppnishæfasta landið, en Singapúr var í þriðja sæti skýrslunnar í fyrra. Þar á eftir koma Hong Kong og Bandaríkin.

Sé litið til einstakra þátta kemur Ísland best út úr mælingum á samfélagslegum innviðum en þar er landið metið í 9 sæti. Útlitið er ekki jafnbjart þegar kemur að efnahagslegri framistöðu, en þar er landið metið í 51. sæti.

Í skýrslunni kemur fram að það muni taka Ísland meira en tuttugu ár að ná skuldum hins opinbera niður á viðráðanlegt stig, eða undir 60%. Ísland er þar í hópi þjóða á borð við Ítalíu, Portúgal, Belgíu, Bandaríkin og Grikkland.

Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra gerir reyndar athugasemd við að horft sé til vergra skulda ríkisins, en ekki hreinna skulda, en þá sé myndin skárri.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×