Innlent

Bannað að koma til Bandaríkjanna: „Þetta var algjör martröð“

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Ung íslensk kona, á leið í jólafrí í Bandaríkjunum, var leidd í handjárnum út af flugvellinum í Seattle eftir margra klukkustunda yfirheyrslur og læst inni í fangaklefa. Eftir tæpan sólarhring í haldi var henni snúið aftur til Íslands. Hreinasta martröð, segir konan.

Hulda Lind Kristinsdóttir er 23 ára gömul, selur Aloe Vera vörur og hefur stundað fyrirsætustörf. Þann 11. desember hélt hún ásamt kærasta sínum, sem er bandarískur að uppruna, til Bandaríkjanna.

„Við kærasti minn vorum búin að plana að fara þessa ferð saman og ætluðum að vera með fjölskyldu hans um jólin,“ segir Hulda Lind.

Þau flugu til Seattle og áttu að fljúga þaðan til Los Angeles. En þangað komst Hulda aldrei í þessari för. Vandræðin byrjuðu í vegabréfaskoðuninni á flugvellinum í Seattle þegar Hulda skilur ekki spurningu starfsmanns. Þau eru tekin afsíðis og síðan er Hulda yfirheyrð ein.

„Þannig byrjaði allt þetta spurningaflæði og þessi læti,“ segir Hulda Lind.

Hulda segir að vendipunktur hafi orðið í yfirheyrslunni við þessar spurningar, og þegar hún svarar að hún sé alveg eins að leita að vinnu sem fyrirsæta í Bandaríkjunum. Þá hafi þeir gúglað hana, fundið fyrirsætumyndir og um leið hafi tónninn breyst.

„Þá var það rosalega vafasamt mál og þeir voru búnir að ákveða að hleypa mér ekki inn í landið.“

Eftir um sex klukkustunda yfirheyrslur og bið á flugvellinum, segir Hulda, átti að útvega henni gistingu yfir nóttina. Sú gisting var þó ekkert í líkingu við það sem hún bjóst við.

„Þá var ég sett í handjárn og það var þvílík niðurlæging,“ segir Hulda Lind sem var leidd um flugvöllinn handjárnuð fyrir aftan bak.Hún fór síðan í lögreglubíl og áttaði sig svo á því að hún gististaðurinn var fangelsi.

Af frásögn Huldu að dæma hefur hún lítið næði fengið yfir nóttina, hún er send úr einum klefa í annan og síðan þann þriðja og yfirheyrð, kannað hvort hún sé ólétt og mynduð í bak og fyrir. Hún segir að sér hafi liðið eins og glæpamanni.

„Þetta var algjör martröð.“

Eftir tæpan sólarhring í haldi bandarískra yfirvalda var hún sest í flugvél Icelandair, vísað burt frá Bandaríkjunum, flugmiðar upp á mörg hundruð þúsund krónur tapaðir. Hulda vildi þó ekki gefast upp við svo búið, fór skömmu eftir heimkomuna að sækja um vegabréfsáritun - en þá var henni hafnað:

„Svo kom upp ný ástæða, af því ég var ekki í nógu vel launaðri vinnu þá var mér neitað, þetta er einum of mikið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×