Viðskipti innlent

Samkeppniseftirlitið segir Símann á villigötum

Samkeppniseftirlitið segir málatilbúnað Símans ekki eiga við rök að styðjast en Síminn hefur stefnt Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar sem framkvæmd var á dögunum. Síminn krefst þess að öllum gögnum sem aflað var verði eytt í ljósi þess að starfsmenn samkeppnisaðila hafi annast afritatökuna.

„Eins og fram er komið opinberlega framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit hjá Símanum og öðrum fyrirtækjum í sömu samstæðu, þann 21. apríl síðastliðinn," segir í yfirlýsingu frá Samkeppniseftirlitinu. „Húsleitin var viðamikil enda þurfti eftirlitið að afrita og leita gagna á nokkrum stöðum í húsnæði fyrirtækjanna." Því þurfti Samkeppniseftirlitið þurfti því að fá til liðs við sig nokkra einstaklinga með upplýsingatækniþekkingu til að aðstoða við aðgerðina og leitaði til Þekkingar í því skyni.

„Umræddir einstaklingar voru starfsmenn Samkeppnis-eftirlitsins á vettvangi og störfuðu samkvæmt fyrirmælum og á ábyrgð þess," segir ennfremur. Þá segir að öll aðgerðin hafi farið fram undir stjórn Samkeppniseftirlitsins og þau gögn sem haldlögð voru og afrituð eru vistuð með öruggum hætti hjá Samkeppniseftirlitinu. „Umræddir einstaklingar komu hvergi nærri haldlagningu gagna eða efnislegri skoðun tölvugagna heldur fólst hlutverk þeirra einvörðungu í tæknilegri aðstoð við afritun gagna. Málatilbúnaður Símans á því ekki við rök að styðjast."

Þá segir að lokum að með hliðsjón af framangreindu komi kæra Símans og krafa um eyðingu húsleitargagna á óvart, „ekki síst í ljósi þess að Síminn lýsti því opinberlega yfir að fyrirtækið myndi vinna með Samkeppniseftirlitinu við öflun gagna og rannsókn á þeim."






Tengdar fréttir

Síminn stefnir Samkeppniseftirlitinu vegna húsleitar

Síminn hf. sakar símafyrirtækið Þekkingu, sem á í samkeppni við Símann á upplýsingatæknimarkaði, um að hafa afritað tölvugögn Símans og Skipta við húsleit sem Samkeppniseftirlitið framkvæmdi í síðustu viku. Þar á Þekking að hafa starfað sem undirverktaki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×