Fæðubót: Böl eða blessun? Jón Ótttar Ragnarsson skrifar 13. mars 2010 06:00 Faðir minn kenndi mér ungum að gleðjast aldrei yfir óförum annarra. Ég verð þó að játa að ég átti erfitt er ég las grein dr. Magnúsar Jóhannssonar um fæðubótarefni í Læknablaðinu í fyrri viku! Fjöregg þjóðarAllt frá landnámstíð héldu fæðubótarefni lífinu í Íslendingum. Ástæðan var sú að kalt loftslag er óhagstætt fyrir matjurtarækt og innflutt korn var dýrt og oft skemmt. Fyrir bragðið kom fæðið að mestu úr dýraríkinu. Af þessum sökum áttu Íslendingar um aldaraðir heimsmet í prótínneyslu. Á hinn bóginn er slíkt fæði snautt afandoxurum á borð við C-vítamín, sem er helsta afeitrunarefni („detox“) lifrarinnar, yngingarbrunnur líkamans omfl.Yfir sumartímann lögðu Íslendingar því allt kapp á að safna vetrarforða af fæðubótarefnum á borð við fjallagrös, blóðberg, ætihvönn, ber og söl sem gáfu þeim gnægð af C-vítamíni og öðrum mögnuðum andoxunarefnum. Mikilvægast var lýsið sem gaf þrjú dýrmæt fjörefni: ómega-3, D- og A–vitamin. Skýrir þessi einstæða blanda dýrafæðis og villijurta annálaða fegurð íslenskra kvenna og ótrúlegu lífsgleði og hreysti Íslendinga í aldanna rás þrátt fyrir hallæri og faraldra. Náttúruperla og heilsuparadísFæðubótarefni og krydd voru löngum eftirsóttasta auðlind jarðar. Í dag eru fæðubótarefni, ásamt líkamsrækt og óhefðbundnum lækningaðferðum, kjölfesta hollustubyltingarinnar sem nú breiðist út um heiminn. Þessi bylting hefur nú þegar byggt nýtt heilbrigðiskerfi við hlið þess gamla. Spáir þekktasti heilsuhagfræðingur heims, Paul Zane Pilzer prófessor, að auðsköpun á þessu sviði á næstu árum verði eins hröð og gerðist í tölvugeiranum í lok 20. aldar! Þetta er okkar tækifæri! Íslendingar eiga fegursta landið, bestu fiskimiðin og lýsið, ómengaðasta vatnið, loftið og jarðveginn auk urmul villijurta, en umfram allt heitar laugar og jarðhita sem undirstöðu stóriðju á ylræktuðum kryddum og lækningajurtum. AndspyrnanÞrátt fyrir áratugarannsóknir okkar fremstu vísindamanna og lækna á íslenskum fæðubótarefnum - með dr. Sigmund Guðbjarnason prófessor í fararbroddi – hefur harðsnúinn hópur afturhaldsseggja unnið markvisst gegn útbreiðslu þeirra. Þótt ótrúlegt sé hefur æðsti presturinn, dr. Magnús Jóhannsson, varðgæslumaður hins alþjóðlega lyfjaiðnaðar, einkum ráðist á það næringarfyrirtæki sem stendur fremst vísindalega og er eitt örfárra sem setur allar vörur í ströngustu skoðun yfirvalda. Er ofstækið slíkt að í meira en áratug hélt hann úti svæsnu níði um Herbalife á vefsíðu Háskóla Íslands! Er þetta þeim mun furðulegra í ljósi þess að inn í landið flæða nú fæðubótarefni af geysi misjöfnum gæðum nær eftirlitslaust! Um árabil kenndi hann heilli kynslóð íslenskra lækna lyfjafræði og ól á andúð og þar með fáfræði þeirraá fæðubótarefnum, náttúrulækningum og öllu öðru sem gat dreift huga þeirra frá „kjarna málsins“: gervilyfjunum. Áhrifin létu ekki á sér standa og árið 2002 var svo komið að yfir 75% ungra manna og 85% ungra kvenna á Íslandi voru hætt að taka lýsi með skelfilegum afleiðingum fyrir lífslíkur þeirra og lýðheilsu þjóðarinnar! Sem betur fer sjá æ fleiri í gegnum hræðsluáróður afturhaldsaflanna. Breiðist hollustubyltingin nú hratt út, ekki síst meðal ungs fólks, á sama tíma og æ fleiri ungir læknar losa sig undan kverkataki fulltrúa gamla tímans. „Stóra bomban!“Eftir að hafa margtilkynnt að brátt sjái rannsóknir hans á skaðsemi fæðubótarefna dagsins ljósbirtust þær loks í Læknablaðinuí síðustu viku. Er ekki ofsögum sagt að margir hafi orðið þrumu lostnir. Í fyrsta lagi reyndist sjúklingafjöldinn ótrúlegur: 5 manns á tíu árum (af yfir 10.000 manns sem neyttu vörunnar)! Þar sem flestar Herbalife-vörur innihalda öfluga náttúrulega andoxara bendir þetta til einstaklega lágrar skaðsemisvirkni. Staðfestir það sem áður var vitað að andoxarar eru ekki skaðvaldur, heldur besta vörn lifrarinnar gegn eitrun og bólgum af öllu tagi. Þar við bætist að Herbalife leiðir nú heimsátak gegn illvígasta lifrarbólgufaraldri allra tíma, offitulifrarbólgunni. Strax næsta morgun viðurkenndi dr. Magnús að af 5 sjúklingum hefðu allir nema 1 (!) líka tekið inn gervilyf eða verið með undirliggjandi sjúkdóm og fullyrti um leið aðlangflestar vörur Herbalife væru vitameinlausar, enda “bara matur”. Í öðru lagi: Enda þótt grein hans sé tileinkuð Herbalife reyndust 5 af þeim 8 jurtum sem tilgreindar eru aldrei hafa verið í vörum Herbalife á Íslandi! Og hverjar voru hinar þrjár sem voru það og hljóta því að vera sökudólgarnir! Þær voru (haldið ykkur!): (a) ein þekktasta lækningjurt heims, aloe vera, (b) eitt algengsta krydd jarðar, negull, og loks (c) þjóðardrykkur ¼ mannkyns, grænt te, sem WHO* hvetur alla fullorðna jarðarbúa til að drekka daglega í heilsuskyni! Til að kóróna skrípaleikinn er aðalorsök lifrareitrunar vel þekkt, en það eru einmitt skjólstæðingar hans, gervilyfin (sjá t.d. grein í sama Læknablaði), en það er þeim að þakka að amk. 100 Íslendingar deyja árlega (og amk. tífalt fleiri fárveikjast)! Hygg ég, eftir öll þessi endemi, að ekki sé of djúpt tekið í árinni þegar sagt er að ef dr. Magnús á sér ennþá einhverja fylgismenn á Íslandi er ólíklegt að þeir láti mikið sér kræla næstu áratugina, hvað þá árin! Á meðan getum við hin aftur einbeitt okkur að því að stemma stigu við offitufárinu, bæta næringarástand þjóðarinnar, afeitra í okkur lifrina . og á sama tíma að hjálpa dr. Sigmundi og félögum að endureisa fjárhag íslensku þjóðarnnar! Höfundur er Doktor í næringarfræði og fyrrum yfirmaður matvæla- og næringarbrautar Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun