Þúfan og hóllinn 24. febrúar 2010 06:00 Fréttablaðið hefur sýnt málefnum vinstri grænna mikinn áhuga á síðustu vikum. Síðast á mánudaginn birtist fréttaskýring um meintan klofning innan hreyfingarinnar og af honum eru dregnar ýmsar ályktanir, sumar ansi brattar. Lök framkvæmd?Þar er vikið sérstaklega að forvali VG í Reykjavík sem fram fór 6. febrúar sl. og fjallað um „laka framkvæmd kosninganna“. Staðreyndin er hins vegar sú að framkvæmd forvalsins var almennt til mikillar fyrirmyndar, enda einvalalið innan hreyfingarinnar sem kom þar að málum. Kjörsókn var framar vonum og raunar meiri nú en í síðasta forvali til alþingiskosninga. Í eftirleik forvalsins kom í ljós að ekki voru allir frambjóðendur fyllilega sáttir og formaður kjörstjórnar var gagnrýndur fyrir að hafa veitt misvísandi upplýsingar um meðhöndlun póstatkvæða. Til að uppstilling á lista í kjölfar forvalsins yrði hafin yfir allan vafa tók forvalsstjórn ekki við því starfi, eins og hefð er fyrir, og því verður ný uppstillingarnefnd skipuð. Í þessu fólst engin yfirlýsing um að framkvæmd forvalsins hefði verið „lök“, enda ríkti almenn ánægja innan stjórnar VG með forvalsstjórnina og störf hennar. Steingrímur og ÖgmundurÍ sömu fréttaskýringu er miklu púðri eytt í þær kenningar að Vinstri græn sé klofin og að félagsmenn fylgi annað hvort Steingrími J. Sigfússyni eða Ögmundi Jónassyni að málum. Kenningarnar ganga út á það að allt umrót innan VG megi rekja til valdabaráttu á milli þeirra tveggja. Jafnvel hversdagslegur misskilningur á milli borgarfulltrúans Sóleyjar Tómasdóttur og varaborgarfulltrúans Hermanns Valssonar hefur verið talinn til marks um spennuna sem ríki á milli fylkinga. Í fjölmiðlum var fjallað um „skoðanakúgun“ og „átök“ þegar um var að ræða einfaldan misskilning. Þannig hefur verið mjög lærdómsríkt að fylgjast með því undanfarið – bæði í fjölmiðlum og á bloggsíðum – hvernig reynt er að skipa fjölmörgum félögum í VG á bása, annaðhvort með Steingrími og á móti Ögmundi – eða öfugt. Hvaðan slíkar sögur eru sprottnar veit ég ekki, en þegar talað er um Sóleyju Tómasdóttur og undirritaðan sem hluta af Steingríms-arminum, jafnvel Svavars-arminum (svo dæmi séu tekin) þá þykir mér helst til langt seilst í lestri á hinu pólitíska landslagi. Ég hef starfað mikið innan VG í rúmt ár og kynnst ótal félagsmönnum á þeim tíma. Fæstir þeirra gefa mikið út á þessa skiptingu, enda flestir almennt ánægðir með bæði Steingrím og Ögmund og áherslur þeirra, þótt hvorugur sé hafinn yfir gagnrýni. Kynslóðaskipti og ný staðaFyrir mér er skoðanaágreiningur innan VG augljós og ekkert til að fara í grafgötur með. Sá ágreiningur stafar af hins vegar af öðrum sökum en þeim að Steingrímur og Ögmundur takist á bak við tjöldin. Fyrir það fyrsta stækkar hreyfingin hratt og öðlast breiðari skírskotun á meðal landsmanna, eins og fylgisaukning síðustu ára sýnir. Það þýðir að í hreyfinguna bætast nýir einstaklingar sem vilja starfa og hafa áhrif. Þeir eru gjarnan í yngri kantinum og sumir hafa aðrar áherslur en þeir sem lengur hafa starfað. Í öðru lagi er hreyfingin í þeirri nýju stöðu að halda um stjórnartaumana í landinu, sem þar að auki er í skugga efnahagshrunsins. Í þriðja lagi hefur hún þurft að fara í gegnum flókin og erfið mál sem hafa reynst henni erfið. Hér er auðvitað átt við ESB-umsóknaraðild og Icesave-arfleifðina frá fyrri ríkisstjórn – mál sem hafa sannarlega valdið deilum í þingflokki VG sem og meðal allra félagsmanna.Engin ástæða er til að hafa áhyggjur af því að tekist sé á innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, rétt eins og innan allra annarra stjórnmálaflokka. Þá fyrst væri ástæða til að hafa áhyggjur af VG ef almennir félagsmenn færu að trúa ýktum sögum um meintar fylkingar Steingríms og Ögmundar, enda hafa fæstir þeirra sem virkir eru í félagsstarfinu áhuga á að láta draga sig í dilka. Hér er ágætt að minna sig á að félagsmenn í VG skipta þúsundum, virkir félagar í flokksstarfinu skipta hundruðum, og samtakamáttur þeirra er miklu meiri en svo að dulítill hristingur í fjórtán manna þingflokki nái að breyta þúfu í hól og valda almennum klofningi. Við erum vön því að takast á, við erum vön því að vera ósammála, við erum vön því að þora að skammast í flokksforystunni. Og við það situr.Höfundur er formaður VG í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar