Innlent

Eigendaskipti á DV og dv.is

Reynir Traustason
Reynir Traustason
Hreinn Loftsson og fyrirtæki hans, Birtíngur hf., hafa selt rekstur dagblaðsins DV og fréttavefsins dv.is til nýrra eigenda. Nýtt hlutafélag, DV ehf., sem gekk að kaupunum, er að stærstum hluta í eigu Lilju Skaftadótttur listaverkasala og Reynis Traustasonar, ritstjóra DV. Starfsmönnum verður gert kleift að eignast hlut í blaðinu en í fréttatilkynningu frá nýjum eigendum kemur fram að hópurinn sem stendur að kaupunum verði kynntur nánar í DV eftir páska.

Í tilkynningu frá hópnum er jafnframt sagt að lögð verði áhersla „á að takmarka áhrif eigendavalds á DV, en í samþykktum hins nýja félags er kveðið á um að enginn einn hluthafi geti farið með meira en 26 prósent atkvæða, óháð hlutafjáreign.“

Rekstur blaðsins verður óbreyttur og munu útgáfudagar verða jafnmargir og áður sem og ritstjórn blaðsins. Lilja Skaftadóttir hefur starfað sem listaverkasali í Frakklandi og er lítt þekkt nafn í viðskiptalífinu hérlendis. Hún var framleiðandi heimildarmyndarinnar „Maybe I should have“ og skipaði 2. sæti á lista Borgarahreyfingarinnar í NV-kjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar. Auk þess að eiga í DV er hún meðal hluthafa í vefritinu Smugan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×