Afnemum hverfaskiptinguna strax 5. ágúst 2010 06:00 Þann 30. júlí síðastliðinn birtist grein í Fréttablaðinu eftir Súsönnu Margréti Gestsdóttur þar sem hún lýsir yfir stuðningi við nýjar innritunarreglur í framhaldsskóla og hvetur til víðsýnni umræðu um skólamál á Íslandi. Í grein Súsönnu sá ég í fyrsta sinn rök fyrir þessum nýju reglum og fannst mér greinin því einkar áhugavert innlegg í þessa þjóðþörfu umræðu. Súsanna telur að fjölbreytni innan framhaldsskólanna aukist með þessum nýju reglum, að brottfall nemenda sé "mun brýnna umhugsunarefni" en vankantarnir á hinu nýja kerfi og að engum þeim sem ljúka grunnskólanámi sé vísað í lélegan framhaldsskóla. Á Íslandi hefur lengi verið ákveðin þöggun varðandi menntakerfið okkar. Því hefur verið haldið uppi af menntamálaráðuneytinu, flestum framhaldsskólum og víða í hinni samfélagslegu umræðu að framhaldsskólarnir séu sambærilegir og að stúdentspróf frá einum þeirra jafngildi stúdentsprófi frá öðrum. Því að þannig á það að vera. Það á ekki að fá að hafa afgerandi áhrif á líf ungra Íslendinga - neikvæð eða jákvæð - hvort þeir lendi í FB en ekki MH, Kvennó en ekki Borgó. Þetta viðhorf endurspeglast í grein Súsönnu Margrétar sem inniheldur marga góða punkta en viðurkennir þó ekki grundvallarvanda íslenska menntakerfisins. Því að á Íslandi eru óneitanlega bæði góðir og lélegir skólar. Hvernig öðruvísi má útskýra þá staðreynd að nokkrir skólar fái langflestar umsóknir miðað við fjölda plássa í boði og að nokkurn veginn sami hópur af skólum komi áberandi best út úr könnun meðal nýnema í HÍ? Í sömu könnun kemur fram að í sumum skólum telja um 30% stúdenta að námið hafi ekki undirbúið sig undir háskólanám. Hljóta það ekki að teljast lélegir skólar? Menntamálaráðherra virðist hafna því. Hún telur kerfið nógu staðlað og skólana nógu sambærilega til að innleiða kerfi hverfaskiptingar þar sem 45% af nýnemum í framhaldsskóla verða að koma af tilteknu svæði í nágrenni skólans. Skólarnir halda áfram að meta nemendur út frá einkunnum og afleiðingin er einstaklega óréttlátt skipting þar sem nýnemar í vissum borgarhlutum njóta forréttinda umfram aðra eftir því hvort þeir hafa áhuga á bíliðngreinum, ferðamálanámi eða bóknámi sem veitir þeim góðan undirbúning fyrir háskólanám. Vitleysan er svo fullkomnuð þegar skólarnir hafa ekki einu sinni samræmdar einkunnir til að miða við heldur einungis skólaeinkunnir sem gefa mismunandi mynd af námsárangri nemenda eftir því úr hvaða grunnskóla þeir koma. Súsanna fullyrðir að í mörgum framhaldsskólum sé nemendahópurinn orðinn einsleitur miðað við það hvernig hann var áður en hverfaskiptingin var afnumin á sínum tíma, enda kynnist nemendur aðeins fólki "með svipaðan bakgrunn og sambærileg framtíðaráform". Þetta hlýtur að teljast illa ígrunduð afstaða. Menntamálaráðuneytið veitir skólunum ákveðin verkefni og gefur þeim jafnframt svigrúm til að marka eigin sérstöðu. Þetta hafa nemendur í huga þegar þeir velja sér skóla. Þegar hverfaskipting kemur ofan á þetta kerfi eru nemendur ekki aðeins skikkaðir til að halda áfram í sama félagslega umhverfi með bekkjarfélögum sínum úr grunnskóla og öðrum í nærumhverfinu, heldur þvingaðir í það nám sem hverfisskólinn býður upp á og þar af leiðandi útilokaðir frá öðrum framtíðaráformum en þeim sem námið miðar að. Hverfaskipting framhaldsskólanna er ekki réttlætanleg nema þeir bjóði allir upp á sama nám. Slíkt er svo sannarlega ekki staðan í dag, enda er það óeðlilegt og óhagkvæmt. Fjölbreytnin í framhaldsskólaflórunni er af hinu góða, enda fær nemandinn að velja nám sem hentar áhugasviði hans. Slíkt leiðir ekki til "einsleitni", heldur kynna við fólk úr öllum áttum með svipuð áhugasvið. Það er einmitt hverfaskiptingin sem dregur úr fjölbreytni í nemendahópnum. Við Súsanna erum sammála um að það eru mörg vandamál í íslenska menntakerfinu, en nýju innritunarreglurnar í framhaldsskóla eru ekkert svar við þeim. Grundvallarvandamálið er að margir skólar - bæði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi - bjóða ekki upp á krefjandi en jafnframt spennandi nám sem veitir raunverulegan undirbúning fyrir lífið þannig að nemendur sjái tilgang í að ná árangri. Afleiðingin er mikið brottfall úr framhaldsskólum sem er vandamál sem við getum ekki sætt okkur við. Auðvitað veita einkunnir takmarkaðar upplýsingar um nemendur og það er sjálfsagt að hugsa sér aðrar leiðir í innritunarferlinu. Ein leið væri að nýnemar skrifi stutta ritgerð sem fylgi með umsókn þeirra í framhaldsskóla þar sem þeir kynna viðhorf sín og áhugasvið. Slíkar upplýsingar eru mun persónulegri og marktækari en heimilisfang. Mennt er máttur og í veröld nútímans er þjóð ekki frjáls og sjálfstæð nema hún sé menntuð og upplýst. Menntakerfið á Íslandi þarf auknar fjárveitingar og aukna athygli stjórnmálanna. En meðan að við bíðum eftir að það sé raunhæfur möguleiki þarf að afnema þessar nýju innritunarreglur - þær eru ósanngjarnar, illa ígrundaðar og gera ekkert nema að ýkja þau vandamál sem eru til staðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar